Síða 1 af 1

pajero vessin

Posted: 13.aug 2012, 17:04
frá mindelo
er með bensín pajero árg 2002 skutlaðist hérna á milli bæja og þegar ég stoppa og set af d yfir á p fynst mer sem staungin sé frekar stíf ,svo þegar ég keir svo heim aftur og set úr d yfir í p þá fyn ég að hún er tölvert stífari að færa hana og óeðlilega stíf hefur einkver lent í svipuðu og getur einkver sagt mér hvað þetta gæti hugsanlega verið ég er ekki alveg að fata hvað þetta gæti verið en sjálfsagt gæti þetta einkvað teingst ventlakistuni í skiftinguni en skil ekki hvað hefði átt að ske þar sem nóg er af olíu en gæti verið hitta kanski um að kenna en það er eingin hitamælir á þessu drasli sem ætti að vera ekki síður en vélini en ef einkver veitt endilega tjaið ykkur um það

Re: pajero vessin

Posted: 13.aug 2012, 17:20
frá hobo
Þekki ekki bensín pajero, en þetta hljómar eins og að stangir sem liggja frá skiptistönginni í skiptinguna séu að festast. Þá er líklega um að ræða plastfóðringar sem er að gróa fastar við öxla.
Þetta er bara skot í myrkri, veit ekki hvernig þetta er uppbyggt í þessum bíl.

Re: pajero vessin

Posted: 13.aug 2012, 18:49
frá flækingur
ég er með svona bíl og veðja á stöngina.. það er hitanemi í skiptingunni og hann kveikir ljós í mælaborðinu ef hún hitnar. þú sérð þetta ljós þegar þú svissar á hann. það kemur at temp efst smá stund.
KV: Dolli

Re: pajero vessin

Posted: 13.aug 2012, 21:58
frá HaffiTopp
Það er barki frá gírveljaranum/stönginni og niður í skiftinguna, vinstra megin á henni. Gæti verið orðinn stífur vírinn inni í barkanum eða þá stilliverkið við endann á barkanum á hliðinni á skiftingunni.

Re: pajero vessin

Posted: 14.aug 2012, 18:52
frá Sævar Örn
Ég ætla að veðja á barkann, ég hef skipt um hann amk, í 4 V60 pajero bílum

Re: pajero vessin

Posted: 19.aug 2012, 10:09
frá mindelo
takk fyrir góð svör þetta var bölvaður barkin sem var farinn að vera svona leiðinlega stífur skifti honum út og nú enis mjúkur og konu rass núna heheheh