Síða 1 af 1

pæja 87

Posted: 20.júl 2012, 11:21
frá sigurjón
hefur ekki einhvur átt og/eða breytt þessum bílum ? ég var að eignast 38" stubb og stendur til að hásingavæða hann og henda flatjárnunum og setja gorma. þarf reyndar að byrja á því að sjóða upp grindina í honum. ég hendi inn myndum við tækifæri.

Re: pæja 87

Posted: 20.júl 2012, 22:25
frá muggur
Gætir prófað að hafa samband við þennan. Hann setti patrol hásingu undir sinn galloper og mixaði í hana mmc hlutföll.
http://www.jeppaspjall.is/viewtopic.php?f=9&t=11405

Re: pæja 87

Posted: 21.júl 2012, 04:01
frá olei
Veltu því fyrir þér hvort að það væri ekki skynsamlegra að eyða vinnu og peningum í nýrri bíl með meiri framtíð.

Re: pæja 87

Posted: 21.júl 2012, 11:06
frá muggur
olei wrote:Veltu því fyrir þér hvort að það væri ekki skynsamlegra að eyða vinnu og peningum í nýrri bíl með meiri framtíð.


Bíllinn að verða fornbíll, engin bifreiðagjöld og skodun annað hvert ár.
Væntanlega ódýr bíll ef maður og því má eyða peningunum í eitthvað annað eins og ný dekk og olíu til að ferðast.
Stubbur á 38 tommu er ansi magnað tæki.
Afhverju má bara leggja tíma og pening í toyotur?

Re: pæja 87

Posted: 21.júl 2012, 12:31
frá sigurjón
sammála síðasta ræðumanni. þetta er akkurat mín hugsun bílinn er fornbíll og kostar minna að reka hann á ári en mánaðar trygging a nylegum bíl. og því allt í lagi að henda smá ást og ummhyggju í hann :) en já takk fyrir ábendinguna Muggur ég prufa að hafa samband við hann