Vandamál með sjálfskiptingu í "95 árg. af pajero 2.8 diesel
Posted: 18.jún 2012, 22:25
Sælir,
Ég er búinn að vera í þónokkrum vandræðum með Pajeroinn minn og margir búnir að koma að þessu vandamáli en ekki hefur
fundist lausn á vandamálinu. Nú er spurning hvort að einhver þekki vandamálið :)
Þannig er að bíllinn er sjálfskiptur og stundum lætur skiptingin mjög illa og jafnvel eins og hún festist bara í einum gír. Lengi vel var þetta þannig að stundum lét hann svona illa og var svo bara í lagi þess á milli en núna upp á síðkastið hefur hann versnað.
Þetta er verst út á vegi vegna þess að bíllinn skiptir sér ekki yfir í overdrive gírinn og er því á öskrandi snúning ef að reynt er að notast við ræfilinn út á vegi. Innanbæjar er vandamálið ekki svo mikið vegna þess að hann skiptir sér bara nokkuð eðlilega fyrstu þrjú þrepin.
Er einhver sem að þekkir vandamálið? Er einhver með góða hugmynd um hvað gæti verið að?
Þakkir fyrir svörin,
Kveðja úr norðurlandinu :)