Síða 1 af 1

difender 44"-46"

Posted: 03.feb 2013, 22:57
frá risinn
Jæja ég stend frammi fyrir því að kaupa mér ný dekk fyrir næsta vetur. Bíllinn er Land Rover Difender 2003 á 44" dekkjum núna og ég er að spá hvort að ég eigi að setja 44" eða 46" dekk undir kakkan ? Verð munur er nánast enginn á dekkjunum en ég veit að ég þarf að fá mér nýjar felgur og lyfta bílnum aðeins upp fyrir 46" dekkinn.
Hvað finnst ykkur fræðingunum að ég eigi að gera með þetta ?

Kv. Ragnar Páll.

Re: difender 44"-46"

Posted: 03.feb 2013, 23:05
frá ellisnorra
viewtopic.php?f=30&t=15601

Þarna eru allavega flott dekk á ferðinni :)

Re: difender 44"-46"

Posted: 03.feb 2013, 23:13
frá reyktour
Alt er betra en fun country 44"

Er búinn að vera í sömu hugleiðingum.
Bíllin er bara að ég held ekki nógu þungur til að bæla 46" nema að þau séu vel slitin eða skorinn.
Ég er á 130 bílnum og vigtar hann aðeins meira en þinn. bælir ekki 44 fyrr en í 2 pundum.
Væri samt skemtilegt að sjá hvernig hann kemur út á 46"

Kveðja frá þjáningarbróður

Re: difender 44"-46"

Posted: 03.feb 2013, 23:23
frá jeepson
Er einhver defender hérna á klakanum á 46" Ef ekki, er ekki málið að annar hvor ykkar ríði á vaðið með 46"?? Mér lýst vel á hvenrig Guðni Sveins skar dekkin sín.

Re: difender 44"-46"

Posted: 03.feb 2013, 23:29
frá sukkaturbo
Sælir þessi bældust undir foxinum og gott að aka á þessu létt að snúa þeim og standa ekki meira en ný 44 Dic Cepek en eru breiðari og 70 kg með 20 breiðri felgu kveðja guðni

Re: difender 44"-46"

Posted: 04.feb 2013, 12:36
frá reyktour
ýktur er komin 46
er líkabúið að breikka hann og setja stóra ameríska rellu í hann
svo er einn rosalegur á húsavík. svartur. veit samt lítið um hann.

Re: difender 44"-46"

Posted: 04.feb 2013, 13:44
frá xenon
svarti á Húsavík er svakalegur hér eru myndir af honum

viewtopic.php?f=2&p=45910

Re: difender 44"-46"

Posted: 04.feb 2013, 16:35
frá joisnaer
ég held að ef að það ætti að það þyrfti nú eitthvað að breyta hásingum ef það á að nota 46" dekk. held að 44" dc sé bara alveg mörkin sem orginal hásingarnar þola. eða það á við allavega um framhásingar undir defender og fram og aftur undir range og disco. sailsbury aftur-hásingarnar (9.5") ættu svosem alveg að þola þau með sterkari öxlum. en framdrifin eru bara 8"

En ég veit ekki um neinn sem hefur prófað það svo það væri gaman að sjá hvernig það gengur.

Kv. jóhann snær

Re: difender 44"-46"

Posted: 04.feb 2013, 21:47
frá lecter
hvað eru þessi eftir markaðs hlutir sterkir i landrover , , drifin 40% og öxlarnir lika eða var það 30%

svo framarlega sem upprunalegi motorinn er en held ég að með þessum aukahlutum væri þetta ok en ég tala alltaf við snorra i SS gislason ef ég er að vinna i Land Lover þar sem ég er ekki Land Rover snillingur

Re: Defender 44"-46"

Posted: 05.feb 2013, 00:15
frá Icerover
Kannski ekki Defender en þó skyldur, bíllinn sem ég á:

http://www.facebook.com/photo.php?fbid= ... =3&theater

Það er allt hægt en ég mundi ekki nenna að nota orginal drifin frá Rover, gæti samt alveg gengið með "lagfættann" mann við stýrið og kannski hlutföll frá ashcroft. Sterkari öxlar eru einnig skilyrði.

46" dekkin eru ágæt, mér líkaði einnig mjög vel við 44 DC sem ég var á áður, engin jeppaveiki eða neitt bull. Það er mun meira grip í 46" dekkjunum og þarf aðeins að passa sig á að grafa ekki allt á kaf í hálfum hring á dekkinu, þau bælast alveg þokkalega og eru góð á malbiki.

Kveðja, Ásgeir og heimsveldið

Re: difender 44"-46"

Posted: 05.feb 2013, 08:54
frá jongud
lecter wrote:hvað eru þessi eftir markaðs hlutir sterkir i landrover , , drifin 40% og öxlarnir lika eða var það 30%

svo framarlega sem upprunalegi motorinn er en held ég að með þessum aukahlutum væri þetta ok en ég tala alltaf við snorra i SS gislason ef ég er að vinna i Land Lover þar sem ég er ekki Land Rover snillingur


Ástralir eru snillingar í að styrkja allt sem heitir eitthvað-Rover.
Þeir eru m.a. farnir að mixa toyotu-drifköggla í Rover hásingar...

Re: difender 44"-46"

Posted: 06.feb 2013, 22:33
frá risinn
Er einhver sem veit eða á 16" Land Rover felgur ? Ég er að spá í að prófa 46" næsta vetur, það er gott að fara að safna að sér felgum til að byrja með.

Kv. Ragnar Páll.