Síða 1 af 1

skurður á MT ATZ

Posted: 02.mar 2012, 02:12
frá rottinn
sælir félagar. Eru einhverjir hér sem hafa skorið þessi dekk og eiga myndir af dekkjunum?

Re: skurður á MT ATZ

Posted: 02.mar 2012, 17:19
frá rottinn
Nùna eru 110 bùnir að skoða þennan þráð ì dag en enginn tilbúinn að tjà sig. Er þetta eitthvað leyndarmàl eða hefur hreinlega enginn skorið í þesi dekk?

Re: skurður á MT ATZ

Posted: 04.mar 2012, 11:18
frá rottinn
200 manns búnir að skoða. Þetta hlýtur að skila einhverju innan tíðar

Re: skurður á MT ATZ

Posted: 04.mar 2012, 12:28
frá Óli ágúst
Sæll er með MT MTZ og er bar sáttur við þau en er ekki málið að birja að teikna á dekkin og mynda sér skoðun hvernig þú vilt skera þau ekkert er réttara en annað í þessu, svo á ég til dekkjahníf sem ég er til í að leigja fyrir sangjart verð bara bjall í mig ef þú vilt.svo get ég nú bara gert þetta fyrir þig, ef þú ert nálægt Mosó

Re: skurður á MT ATZ

Posted: 04.mar 2012, 19:31
frá Freyr
Sæll

Það er voða lítið af þessum dekkjum í umferð og sjálfur hef ég aldrei séð svona dekk skorið. Hinsvegar eru þetta engin geimvísindi og það er alveg sjálfsagt að horfa á dekkin með þér og merkja á þau hvernig væri gott að skera þau (hef skorið nokkra ganga), vertu í bandi ef þú vilt hitta mig.

Óháð því hvaða skurður verður framkvæmdur, passaðu bara að skurðirnir sem eru á snertifleti dekksins séu ekki alveg samsíða hringnum heldur alltaf aðeins á ská, annars mýkja þeir bara dekkið en gefa þér ekkert aukið grip áfram.

Kv. Freyr S: 661-2153

Re: skurður á MT ATZ

Posted: 04.mar 2012, 21:45
frá monster
böddi hættu að vera kona og farðu i tilrauna starfsemi! færð bara hnifinn hja gamla.