Síða 1 af 1

teikningar af sandblástursgræju

Posted: 25.feb 2012, 11:43
frá LFS
á einhver til myndir eða teikningar af sandblasturgræjum eg er buin að vera skoða þettað á netinu og er ekki alveg á atta mig á hvernig þettað virkar það stendur til að smiða svona eg er kominn með goðan kut undir sandinn krana og einhvað drasl sem eg er buin að sanka að mer en mig vantar að vita hvernig þettað er sett upp...og hvað ætli eg þurfi ofluga dælu ?

Re: teikningar af sandblástursgræju

Posted: 25.feb 2012, 12:03
frá jeepson
Hann Groddi hérna á spjallinu er svo duglegur að teikna. Aldrei að vita nema að hann geti teiknað svona :)

Re: teikningar af sandblástursgræju

Posted: 25.feb 2012, 14:16
frá ellisnorra
Ég er nú ekki öflugur í teikningum, en ég get kannski lýst svona græju. Pabbi smíðaði svona græju fyrir 30 árum og hún er ennþá í fullu fjöri.
Hún samanstendur af stórri traktorsdrifinni 3cyl loftpressu. Hver sylinder er örugglega 2.4 lítrar að rúmmáli.

Úr loftpressunni fer slanga í T, köllum það T1, annar endinn úr T1 fer efst í kútinn og hinn endinn á T1 fer í annað té, köllum það T2.

Neðan á kútnum er krani, og neðan á þeim krana er T2. T2 greinist í; að loftpressu, upp í kranann neðan á kútnum og síðan í slönguna sem maður blæs með.

Á endanum á slöngunni sem maður blæs með er postulínsjector, sem kostar alveg svakalega mikið.

Svona eru græjurnar hans pabba útbúnar, sjálfsagt eru til miklu fleiri útgáfur. En þetta alveg flengvirkar. Við höfum þrýstinginn um 5 bör.

Síðan með sandinn, sumir hafa keypt sigtaðan þurrkaðan sand í stórsekkjum af steypustöðvum, en mér finnst það full gróft, ég hef verið að hugleiða að fá súrál og prufa að nota það. Það er víst 2-3 harðasta efni í heimi og er mjög fínt. Sem dæmi um það þá þarf að setja plastfilmur á allar glerrúður í álverum, annars verða þær mjög fljótlega mattar. Ég tek kannski fötu með mér heim úr vinnunni einhverntíman til að prufa :)

Re: teikningar af sandblástursgræju

Posted: 25.feb 2012, 17:09
frá LFS
ef eg skil þettað rett þá ertu með þrysting inná kuti að ofan og einnig undir hann i gegnum t 2 og inna slonguna ? kraninn undir kutnum er þa til að stilla það magn af sandi sem maður vill fa i hvert skipti ?

Re: teikningar af sandblástursgræju

Posted: 25.feb 2012, 17:27
frá ellisnorra
Kraninn neðan á kútnum er til að stilla sanmagnið já, bara venjulegur kúluloki. Mikilvægt er líka að hafa sama þrýsting báðu megin við kranann svo að sandurinn renni óþvingað í gegnum hann og ofan í T2 til að þeytast úr í blástursslönguna. Þessvegna er trukk á kútinn að ofan.

Ég skal taka mynd af þessu við næsta tækifæri, en ég get ekki lofað því að það verði alveg strax.

Re: teikningar af sandblástursgræju

Posted: 25.feb 2012, 22:22
frá LFS
ja takk kærlega fyrir eg held eg se kominn með þettað er i raun skiteinfalt ef uti það er farið :)

Re: teikningar af sandblástursgræju

Posted: 25.feb 2012, 22:53
frá ellisnorra
Aðal atriðið er að vera með nógu öfluga loftpressu og síðan blástursstúturinn, í upphafi renndi pabbi stútinn úr harðasta stáli sem hann réð við og það virkaði bara ekki, jectorinn slípaðist til alveg á nóinu og hætti að virka.

Re: teikningar af sandblástursgræju

Posted: 26.feb 2012, 00:31
frá LFS
ja felagi minn verslaði ser postulinsjector sem tengdur var inna haþrystidælu hann kostaði augun ur og hendi af við hné svo eg á eftir að finna það ut jafnvel að utbua ser einhverjar foðringar sem maður skiptir ut jafnóðum og þær slitna það verður ekki svo notkuninn á þessu einn patrol og nokkrar dráttarvelar ;)

Re: teikningar af sandblástursgræju

Posted: 26.aug 2012, 17:59
frá LFS
hvað segirðu elli ertu buin að prufa súrálið ?

Re: teikningar af sandblástursgræju

Posted: 26.aug 2012, 18:07
frá ellisnorra
Nei ekki ennþá. Það er líka spurning hvort það éti ekki jectorinn :)

Re: teikningar af sandblástursgræju

Posted: 26.aug 2012, 20:21
frá unnar7
Menn hafa notað bara postulínsöryggi (bræðivar) hreinsað innan úr því og sett það inní formúffu sem þarf kanski aðeins að renna til. Skíteinfalt og fæst allstaðar.

Kv Unnar

Re: teikningar af sandblástursgræju

Posted: 17.jan 2013, 23:02
frá Braskar
kann ekki að setja inn youtube en hér er græja getur líka keipt svona græjur í poulsen held um 30 þúsund með öllu virkar fínt


http://www.youtube.com/watch?v=JsshSoFI1qk

http://youtu.be/JsshSoFI1qk


[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=JsshSoFI1qk[/youtube]

Re: teikningar af sandblástursgræju

Posted: 20.jan 2013, 21:13
frá LFS
ja eg er einmitt byrjaður að smiða svona græju ur scrapmetal keypti sandblástursbyssu i byko á 3?00kr með skiptanlegum stút svo notast eg við loftkút úr vorubíl og alskonar fittings vatnsror hjálparadekk af reiðhjoli og bara það sem bílskúrslagerinn býður uppá :)

Re: teikningar af sandblástursgræju

Posted: 20.jan 2013, 21:22
frá thecrow
Talaðu við strakana hja Iðnvelum þeir eiga allt i þettað eg tek allavega spissa og haldara hja þeim og kostar ekki mikið