Heimsins besti jeppi????

User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1917
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: Heimsins besti jeppi????

Postfrá Sævar Örn » 23.des 2010, 16:30

Lada sport, ekki fyrir gæðin eða endinguna heldur

tækni á sviði fjöðrunar, sjálfstæð fjöðrun að framan, gormar allann hringinn, mjúk og svög fjöðrun en gripgóð og ekki skoppandi, mjög góðir bílar á malarvegi

dekkjaval orginal og orginal veghæð

unibody uppbygging, endin grind

millikassi hátt og lágt, hægt að hafa miðjudrifið opið í lága= engin þvingun

einfaldleiki, sjálfvirkt innsog er eitthvað sem ekki er ekki og á ekki að vera til í alvöru lödu og því voða lítið um vandamál í bensínkerfinu að reglublundnum stillingum undanskildum

bremsukerfi 3 stimpla dælur með 2földu vökvakerfi að framan og kældir diskar, stórar og vígalegar skálabremsur að aftan




Þetta var allt sem rússanum datt í hug árið 1977



bara mín skoðun opinn fyrir leiðréttingum og ábendingum


Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is


birgthor
Innlegg: 621
Skráður: 02.mar 2010, 22:05
Fullt nafn: Birgir

Re: Heimsins besti jeppi????

Postfrá birgthor » 24.des 2010, 01:11

Hummer er ekki Hmmwv

Ég veit ekki með ykkur en jeppi fyrir mér þarf ekki að virka á malbiki, ég vill njóta hans utanvegar.

Hmmwv var með ódrepandi sleggju 6,2 (kannski ekki sú kraftmesta)
Hannaður með vel dreyfða þyngd 50/50
hannaður til þess að láta kasta sér úr flugvél.
lágur þyngdarpunktur en samt hátt undir hann.
Orginal á 37" með úrhleypibúnað í hvert hjól
Sjálfstæð fjöðrun og læst drif.
Kveðja, Birgir

User avatar

oggi
Innlegg: 130
Skráður: 31.jan 2010, 22:35
Fullt nafn: johann oddgeir johannsson
Staðsetning: skagafjörður

Re: Heimsins besti jeppi????

Postfrá oggi » 24.des 2010, 10:09

Sævar Örn wrote:
millikassi hátt og lágt, hægt að hafa miðjudrifið opið í lága= engin þvingun
Þetta var allt sem rússanum datt í hug árið 1977
bara mín skoðun opinn fyrir leiðréttingum og ábendingum


hefur ekki Range Rover með svona millikassa síðan þeir voru fyrst smíðaðir árið 1971
en ég er alveg sammála með löduna frábær orginal jeppi :)

User avatar

Einar
Innlegg: 319
Skráður: 01.feb 2010, 00:32
Fullt nafn: Einar Steinsson
Staðsetning: Austurríki
Hafa samband:

Re: Heimsins besti jeppi????

Postfrá Einar » 24.des 2010, 11:10

oggi wrote:
Sævar Örn wrote:
millikassi hátt og lágt, hægt að hafa miðjudrifið opið í lága= engin þvingun
Þetta var allt sem rússanum datt í hug árið 1977
bara mín skoðun opinn fyrir leiðréttingum og ábendingum


hefur ekki Range Rover með svona millikassa síðan þeir voru fyrst smíðaðir árið 1971
en ég er alveg sammála með löduna frábær orginal jeppi :)

Range Rover Classic (1970—1996) fengi hiklaust mitt atkvæði ef hann væri ekki svona illa smíðaður og bilanagjarn. Ég átti einn árgerð 1988 og hann hreint út sagt stórkostlegur jeppi, draumur að ferðast í hvort sem var á vegi eða vegleysu, rúmgóður, bjartur, og hreint magnaður í ófærum.
En ég hef aldrei átt bíl sem var jafn bilanagjarn og öll smíðin á honum var hálfgerð hrákavinna, engin samskeyti pössuðu o.s.fr. Milli mín og þessa bíls var svona "ástar/haturs" samband, mig langar alltaf í annan en skynsemin segir "ertu galinn!"


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 52 gestir