Síða 1 af 1
vanstar smá hjálp.
Posted: 17.feb 2012, 18:43
frá jong92
þegar ég fór út áðan og setti bílin minn í gang þá kviknaði gult ljós í mælaborðinu, og það hverfur ekki ég er buinn að athuga með ólíu og vatn og það er allt í góðu. eg er buinn að reyna að finna þetta á netinu og finn ekkert það vatar bæklingin i bílin með öllum svona uppls, þetta er pajero sport díslel 1999 árg.
svog eg reyni að lísa ljósinu þá er þetta einsog gamall pottur i laginu með höldum, hálffullur og það dropar fyrir hann miðjan úr botninum,, hehe ég veit að þetta er ekki mjög góð lýsing en þetta verður að duga
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 17.feb 2012, 18:50
frá muggur
Bíllinn er búinn að bræða úr sér!!!!!
Nei bara að djóka, rúðupissið fyrir aðalljósin er búið. Lenti í þessu líka á minni pæju rétt eftir að ég keypti hana og fékk hland fyrir hjartað.
Kv.
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 17.feb 2012, 18:56
frá jong92
jáá en er ekki sama box fyrir rúðupissið á ljósunum og á rúðuna?
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 17.feb 2012, 19:00
frá HaffiTopp
Vatn í hráolíusíunni, annað hvort að tappa úr henni og setja rakavara í tankinn eða skifta um hana hafi það ekki verið gert lengi.
Kv. Haffi
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 17.feb 2012, 19:11
frá jong92
okii fyrir mann sem hefur ekki mikið vit á þessu get ég gert það sjálfur og hver er kostanuður sirka
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 17.feb 2012, 19:49
frá HaffiTopp
Getur kíkt á næstu smurstöð og athugað það, eða hringt í Heklu á mánudag og athugað hvað það kostar þar. Er að vinna á smurstöðinni þar og gæti kíkt á þetta fyrir þig.
Kv. Haffi
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 17.feb 2012, 20:00
frá jong92
ég er fyrir norðan, ég kíkka á einhverja smurstöð ettir helgi
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 17.feb 2012, 20:13
frá HaffiTopp
Athugaðu hvort að Höldur geti tekið hann fyrir þig, veit reyndar ekki hvort þeir taki bíla af götunni á verkstæðið hjá sér en það sakar ekki að reyna. Gætir allavega reynt að gera verðsamanburð með þá í huga líka. Miðað við að þú sért á Akureyri á ég nátturulega við :)
Kv. Haffi
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 17.feb 2012, 21:53
frá fannarp
Það vantar rúðupiss fyrir ljósin þetta eru sitthvoror tankar framm í húddi
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 19.feb 2012, 21:36
frá Svenni30
Þetta er ljósið

Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 19.feb 2012, 21:39
frá jong92
ég var að redda þessu , það var vatn í síuni.
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 19.feb 2012, 21:48
frá Svenni30
Flott, ég ætlaði að heyra í þér á morgun með þetta, gott að það sé komið í lag hjá þér.
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 19.feb 2012, 21:49
frá Svenni30
Settu svo ísvara í tankinn, færð hann t,d í olís
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 19.feb 2012, 21:51
frá jong92
jáá ég þarf samtsem áður að skifta um hana. þarf að kaupa nýja a morgun ég tæmdi bara úr þessari nuna, svog tókum við eftir því þegar við forum að skoða undir hann að það vantar festinguna fyrir millikassan þessa sem fer i grindina
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 19.feb 2012, 22:01
frá HaffiTopp
fannarp wrote:Það vantar rúðupiss fyrir ljósin þetta eru sitthvoror tankar framm í húddi
Það er ekki ljósarúðupiss í Pajero Sport ;)
Kv. Haffi
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 19.feb 2012, 22:39
frá muggur
HaffiTopp wrote:fannarp wrote:Það vantar rúðupiss fyrir ljósin þetta eru sitthvoror tankar framm í húddi
Það er ekki ljósarúðupiss í Pajero Sport ;)
Kv. Haffi
Ég benti fyrst á ljósarúðupissið og roðnaði svo niður í rassgat þegar kom í ljós að þetta var hráolíusía. Maður á kannski að lesa svona pósta mjög vel áður en maður kommentar. Lýsingin á ljósinu hljómaði ekki ósvipað og ljósapissið á stóra Pajero en er betur var að gáð þá passaði lýsingin ekki. Veit ekkert um sportarann og mun halda kjafti í framtíðinni ef beðið er um ráð um slíka vagna.
Note to self: Pajero og Pajero sport er alls ekki sami bíllinn.
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 20.feb 2012, 00:03
frá HaffiTopp
muggur wrote:Note to self: Pajero og Pajero sport er alls ekki sami bíllinn.
Merkilega margt líkt með þeim og um að gera að leggja sitt vog á lóðarskálarnar (eða á hinnveginn) í þessu öllu saman :)
Kv. Haffi
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 20.feb 2012, 12:57
frá gislisveri
Ég er ánægður með hvað menn eru hjálpfúsir hérna inni, alls ekki sjálfgefið. Ekki síður kurteisir.
Hópknús!
Re: vanstar smá hjálp.
Posted: 20.feb 2012, 14:17
frá jong92
jáá þetta er snild, ekki leigi að fá svör!