Síða 1 af 1

Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 21.jan 2012, 08:56
frá Groddi
Var að skoða öryggjaboxið undir mælaborðinu í gær, sá þar enhvað skrítið... öryggið fyrir framljósin hjámér var byrjað að bráðna og sjálft öryggjaboxið í kringum það líka.

Stuttu síðar sloknar framljósin á bílnum, mælaborðsljósin/parkljósin eru þó enn logandi.

Það sést hvergi á vírum frá öryggjaboxi og fram að ljósum.

Allar ágiskanir vel þegnar (:

Takk
Groddi

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 21.jan 2012, 09:14
frá olei
Það er sambandsleysi sem veldur þessari hitamyndun. Og fyrst að öryggið er bráðið er líklegt að sambandsleysið sé akkúrat þar. Það nær ekki góðu sambandi við tengið og hitnar með þessum afleiðingum. Tengið fyrir öryggið er líklega ónýtt.

Ef um er að ræða öryggi af réttri stærð er líklegast að annað sé í lagi í kerfinu og engin útleiðsla til staðar. Ef svo væri hefði öryggið átt að fara, en ekki hitna upp og bræða öryggjaboxið.

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 21.jan 2012, 10:20
frá Groddi
Klippti frá orginal ljósarofann (þetta er wrangler btw) þar kom í ljós að það var búið að tengja saman parkljósavírinn og aðalljósavírinn, sem er samt skrítið því ég gat alltaf kveikt á parkljósum án framljósanna... ???

Samkvæmt teikningum þá á parkljós að vera á 20A öryggi, en 50A (fram í hoodinu) fyrir aðalljós/háuljós

Þar sem að parljósa öryggið er var búið að setja 30A öryggi í, og ég fæ ekki straum úr 50A örygginu fram í rofa... hvað er í gangi !?



Fyrir ykkur fræðimenn þá má finna teikningarnar af (1993 wrangler um miðja síðu og svo ljósarofa teikninguna undir tipical headlight switch wiering diagram ögn neðar)


http://www.pirate4x4.com/tech/billavist ... agrams.pdf


Groddi

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 21.jan 2012, 13:05
frá Groddi
Lagði bara nýann vír að rofanum...

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 21.jan 2012, 19:47
frá Stebbi
20A fyrir parkljós er frekar mikið, venjulega eru þessi öryggi ekki nema 10A.

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 21.jan 2012, 21:05
frá Groddi
Stebbi wrote:20A fyrir parkljós er frekar mikið, venjulega eru þessi öryggi ekki nema 10A.



Samkv. teikningum (sjá link) þá eru parkljósin (framan/aftan/hliðum/inniljós) á 20A öryggi

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 21.jan 2012, 21:11
frá Groddi
Ég endaði á að fjarlæga bæði aðal-ljósarofann og nælaborðs ljósa/dimmer rofann og setti í stað 2stk modular rofa í staðinn, þeir klikka alldre... bara hafa þetta nógu einfallt þá virkar þetta alltaf!!

Einnig búinn að setja alla þá gúmmílista sem vantaði í hurðar (orðinn leiður á að þurfa að moka snjó úr bílnum á morgnanna)

Góða helgi allir!
Groddi

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 21.jan 2012, 21:47
frá jeepson
Groddi wrote:Ég endaði á að fjarlæga bæði aðal-ljósarofann og nælaborðs ljósa/dimmer rofann og setti í stað 2stk modular rofa í staðinn, þeir klikka alldre... bara hafa þetta nógu einfallt þá virkar þetta alltaf!!

Einnig búinn að setja alla þá gúmmílista sem vantaði í hurðar (orðinn leiður á að þurfa að moka snjó úr bílnum á morgnanna)

Góða helgi allir!
Groddi


Ég hefði nú geta selt þér snjóblásara :)

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 21.jan 2012, 22:52
frá Sævar Örn
Það eru til mjög sniðugar græjur til að leita að útleiðslu í rafkerfum, mjög hentugt í þykkum vélarlúmmum tildæmis

http://www.youtube.com/watch?v=ufVuWznm ... 94vgeh9uUs

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 21.jan 2012, 23:15
frá Groddi
Sævar Örn wrote:Það eru til mjög sniðugar græjur til að leita að útleiðslu í rafkerfum, mjög hentugt í þykkum vélarlúmmum tildæmis

http://www.youtube.com/watch?v=ufVuWznm ... 94vgeh9uUs



Sniðug græja... hvar er hægt að fá svona hérlendis?

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 21.jan 2012, 23:16
frá Groddi
jeepson wrote:
Groddi wrote:Ég endaði á að fjarlæga bæði aðal-ljósarofann og nælaborðs ljósa/dimmer rofann og setti í stað 2stk modular rofa í staðinn, þeir klikka alldre... bara hafa þetta nógu einfallt þá virkar þetta alltaf!!

Einnig búinn að setja alla þá gúmmílista sem vantaði í hurðar (orðinn leiður á að þurfa að moka snjó úr bílnum á morgnanna)

Góða helgi allir!
Groddi


Ég hefði nú geta selt þér snjóblásara :)



Stundum hefði ég haft not fyrir blásara sko... allveg magnað hvað það hefur snjóað inn í bílinn innum þessar litlu rifur... ENN! þetta ætti að vera orðið þétt núna (:

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 22.jan 2012, 01:49
frá jeepson
Groddi wrote:
Sævar Örn wrote:Það eru til mjög sniðugar græjur til að leita að útleiðslu í rafkerfum, mjög hentugt í þykkum vélarlúmmum tildæmis

http://www.youtube.com/watch?v=ufVuWznm ... 94vgeh9uUs



Sniðug græja... hvar er hægt að fá svona hérlendis?


Ég væri til í þessa græju. En Groddi þú manst það næst ef að eitthvað klikkar þá á ég blásara haha :)

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 26.jan 2012, 19:43
frá Groddi
Hvað er eginlega í gangi, nú hef ég í tvígang komið að bílnum að morgni til, þá eru rúðuþurkurnr í gangi (letinginn) ... wtf?!

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 26.jan 2012, 19:58
frá Groddi
Groddi wrote:Hvað er eginlega í gangi, nú hef ég í tvígang komið að bílnum að morgni til, þá eru rúðuþurkurnr í gangi (letinginn) ... wtf?!



Fór að hugsa aðeins út í þetta, útvarpið hjá mér er líka hætt að slökkva á sér þegar ég svissa af honum, gæti ekki bara svissbotninn verið farinn ?

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 26.jan 2012, 20:28
frá jeepson
Er nokkuð mál að komast í svissinn og taka löggið úr sambandi?? Það sakar ekki að prufa það.

Re: Er á veiðum eftir útleiðslu...

Posted: 26.jan 2012, 20:34
frá dazy crazy
jeepson wrote:
Groddi wrote:
Sævar Örn wrote:Það eru til mjög sniðugar græjur til að leita að útleiðslu í rafkerfum, mjög hentugt í þykkum vélarlúmmum tildæmis

http://www.youtube.com/watch?v=ufVuWznm ... 94vgeh9uUs



Sniðug græja... hvar er hægt að fá svona hérlendis?


Ég væri til í þessa græju. En Groddi þú manst það næst ef að eitthvað klikkar þá á ég blásara haha :)


átt að geta notað áttavita í staðinn fyrir þessa græju, setur straum á bara það öryggi sem þú vilt leita að og áttavitanálin vísar á vírinn ef það er straumur en annars ekki... In theory.

BTW, er þetta Passat? haha