pajero miðstöðvarvandamál


Höfundur þráðar
kalliguðna
Innlegg: 87
Skráður: 08.des 2010, 12:52
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

pajero miðstöðvarvandamál

Postfrá kalliguðna » 20.jan 2012, 22:08

sælir félagar. hvernig lofttæmir maður miðstöð í pajero ? hann er líklega hækkaður á grind og
og mig grunar að það sé vandamálið að miðstöðin er þeim mun hærri og loki þessvegna loftið
inni. nú er ég bara að giska en þekkja menn þetta vandamál ?? aðstoð væri vel þegin.
kv Kalli
e.þ. það var verið að skipta um mótor og miðstöðin hitnar ekki neitt að ráði eftir aðgerð



User avatar

Braskar
Innlegg: 281
Skráður: 04.jan 2011, 23:56
Fullt nafn: Steingrímur Þór Sigmundsson

Re: pajero miðstöðvarvandamál

Postfrá Braskar » 20.jan 2012, 22:13

Hef ekki trú á að þetta sé útaf body hækkun þar sem vatnskassinn hækkar jafn mikið og miðstöðin hvaða árgerð er þetta er hann með vatnsmiðstöð afturí skotti ?

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: pajero miðstöðvarvandamál

Postfrá Stebbi » 20.jan 2012, 22:18

Braskar wrote:Hef ekki trú á að þetta sé útaf body hækkun þar sem vatnskassinn hækkar jafn mikið og miðstöðin hvaða árgerð er þetta er hann með vatnsmiðstöð afturí skotti ?


Vatnskassinn er yfirleitt færður niður til að viftuspaðinn hakki ekki í sig plastið á vatnskassanum. Yfirfallskúturinn fylgir boddýinu.

Hvað er bíllinn mikið hækkaður á boddý ?
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


Höfundur þráðar
kalliguðna
Innlegg: 87
Skráður: 08.des 2010, 12:52
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: pajero miðstöðvarvandamál

Postfrá kalliguðna » 20.jan 2012, 22:29

þetta er ´95 módel veit ekki um miðstöð afturí . hvað gæti þá verið að plaga ?

User avatar

Polarbear
Póststjóri
Innlegg: 874
Skráður: 31.jan 2010, 23:15
Fullt nafn: Lárus Rafn Halldórsson
Bíltegund: Toyota

Re: pajero miðstöðvarvandamál

Postfrá Polarbear » 20.jan 2012, 22:37

ertu alveg viss um að það vanti hreinlega ekki á hann vatn?


Höfundur þráðar
kalliguðna
Innlegg: 87
Skráður: 08.des 2010, 12:52
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: pajero miðstöðvarvandamál

Postfrá kalliguðna » 20.jan 2012, 22:38

já það er nóg vatn.

User avatar

Polarbear
Póststjóri
Innlegg: 874
Skráður: 31.jan 2010, 23:15
Fullt nafn: Lárus Rafn Halldórsson
Bíltegund: Toyota

Re: pajero miðstöðvarvandamál

Postfrá Polarbear » 20.jan 2012, 22:45

ég setti reyndar bara feitt T-stykki með kúluloka á lögnina hjá mér þar sem miðstöðvarvatnið kemur út aftur í hvalbaknum og setti slöngunippil á kúlulokann...svo bara slöngu í 2ja lítra plastflösku við þetta sem búið var að skera botninn úr og helti þar í aðeins og hafði kúlulokann opinn þar til kerfið var orðið sæmilega volgt og loftbólur voru hættar að koma... :)


Höfundur þráðar
kalliguðna
Innlegg: 87
Skráður: 08.des 2010, 12:52
Fullt nafn: guðmundur karl guðnason

Re: pajero miðstöðvarvandamál

Postfrá kalliguðna » 20.jan 2012, 22:49

Sniðugt, ég var einmitt að spekúlera í eitthvað svipuðum kúnstum en hélt kannski að það væri til einföld lausn sem maður kæmi ekki auga á. takk fyrir


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 58 gestir