Síða 1 af 1
Smá fyrirspurn varðandi Patrol.
Posted: 20.jan 2012, 13:37
frá jason
Ég er með 1999 árg að patrol, óbreyttan bíl og langar að setja undir hann 35" dekk. Get ég gert það án þess að breyta bílnum mikið ? Og hvað þarf ég að gera ef einhverjar breytingar eru þarfar ?
Re: Smá fyrirspurn varðandi Patrol.
Posted: 20.jan 2012, 14:21
frá Árni Braga
Bara að setja dekkin undir og sjá. það þarf ekki að gera mikið...
Re: Smá fyrirspurn varðandi Patrol.
Posted: 20.jan 2012, 14:26
frá jason
Ætli ég þurfi að lyfta honum eitthvað eða er bara nóg að snyrta til brettkantana að framan ?
Re: Smá fyrirspurn varðandi Patrol.
Posted: 20.jan 2012, 15:03
frá Gísli Þór
Það er ekki verra að lyfta honum aðeins eða um ca 5cm/2" og síkka langstífur við grind ásamt dempurum og ballansstangarfestingum svo er þetta bara snyrting á orginal köntum (mjög lítið) nota orginal felgur og mjórri týpuna af 35" dekkjum þá er málið dautt lítill kostnaður við breytingu og bíllinn eins í akstri (góður í stýri) ef síkkun er sleppt þá verður hann mjög lifandi í stýri. Það er einng hægt að fá fóðringar sem leiðrétta hallann á framhásingunni en þú þarft alltaf að hækka smá eða sem nemur laugardagsvinnu með suðuvél og slípirokk.
kv Gísli
Re: Smá fyrirspurn varðandi Patrol.
Posted: 23.jan 2012, 12:14
frá jason
Takk fyrir svörin.
Re: Smá fyrirspurn varðandi Patrol.
Posted: 23.jan 2012, 12:35
frá GFOTH
sæll
ég átti einn em var á 35"
hann var neð 3cm hækkun undir gormum. einginn önnur breyting