Síða 1 af 1

Krapinn getur reynst mönnum erfiður, mig vantar alvöru jeppa

Posted: 15.jan 2012, 18:54
frá dazy crazy
Fann slóð eftir traktor en sennilega fór hann þessa slóð áður en hlákan kom, allavega þá sukku hjólin ofan í poll sem var undir snjónum svo ég þurfti að moka undan öllum bílnum en hafðist þó upp fyrir rest, mig vantar alvöru jeppa því það er leiðinlega erfitt að koma skóflunni undir svona lága bíla.
Vona að einhver geti brosað yfir þessari vitleysu. :D
fastur kornholti 002.JPG
Rétt að byrja
fastur kornholti 003.JPG
ennþá rétt að byrja
fastur kornholti 004.JPG
tada, allt í einu laus 1 og hálfum tíma seinna :)
fastur kornholti 006.JPG
samt orðinn fjandi þreyttur á þessum plaststuðurum
fastur kornholti 007.JPG
Að vísu var þessi mokstur ekki nauðsynlegur því að þessi grafa var í 20 metra fjarlægð en ég er þrjóskari en andskotinn og hvað hefði verið gaman við það :)

Re: Krapinn getur reynst mönnum erfiður, mig vantar alvöru jeppa

Posted: 15.jan 2012, 19:18
frá Ofsi
Fór þessi skipaskurður í umhverfismat ?

Re: Krapinn getur reynst mönnum erfiður, mig vantar alvöru jeppa

Posted: 15.jan 2012, 20:23
frá HaffiTopp
Allavega vonandi að hann hafi tekið sér kaffipásu, er það ekki lögbundið í samningum allra verkamanna? Að maður tali ekki um þá sem eru með vélaútgerð ;)
Kv. Haffi

Re: Krapinn getur reynst mönnum erfiður, mig vantar alvöru jeppa

Posted: 15.jan 2012, 21:18
frá sukkaturbo
Sæll nú er ég sammála þér það er erfitt að moka undan svona lágum bílum. Get látið þig fá einn sem er 50cm undir kúlu kveðja Guðni á Sigló

Re: Krapinn getur reynst mönnum erfiður, mig vantar alvöru jeppa

Posted: 15.jan 2012, 21:25
frá dazy crazy
Ofsi wrote:Fór þessi skipaskurður í umhverfismat ?


HAHAHA, ég lagðist í krampa úr hlátri af þessu snilldar tilsvari

Guðni, ég er búinn að vera að skoða þennan bíl hjá þér og hann er flottur en ég hef ekki efni á því með skóla að reka svona ferlíki nema þú getir reddað mér góðu plássi á sjó í sumar ;)