Síða 1 af 1

V6 4runner 3vze hjálp ?

Posted: 11.jan 2012, 04:23
frá Oskar K
væri gaman ef einhver vissi afhverju v6 dótið hjá mér gengur alltaf í 1300-1500 snúningum kaldur og heitur og er greinilega fastur á kaldstarti (hikar á lágum snúning heitur og púst lyktar greinilega af óbrenndu bensíni)
finn voða lítið útúr þessu sjálfur

Re: V6 4runner 3vze hjálp ?

Posted: 11.jan 2012, 10:42
frá Freyr
Byrjaðu á að athuga hvort það vanti á hann frostlög. Ef það eru aðallega loftbólur kringum vatnshitaskynjarann heldur hann að vélin sé alltaf ísköld.

Freyr

Re: V6 4runner 3vze hjálp ?

Posted: 11.jan 2012, 10:52
frá Startarinn
Kipptu kaldstartspíssinum úr og athugaðu hvort hann er fastur opinn eða lekur

Re: V6 4runner 3vze hjálp ?

Posted: 11.jan 2012, 14:05
frá Hjörturinn
Svona lagar þú þetta fyrir fullt og allt:
http://www.pirate4x4.com/forum/showthread.php?t=137361&pp=30

Re: V6 4runner 3vze hjálp ?

Posted: 12.jan 2012, 00:58
frá Oskar K
Freyr wrote:Byrjaðu á að athuga hvort það vanti á hann frostlög. Ef það eru aðallega loftbólur kringum vatnshitaskynjarann heldur hann að vélin sé alltaf ísköld.

Freyr


loftæmdi um leið og bíllinn hitnaði í fyrsta skipti eftir mótorskiptin, búinn a'ð ath. hvort ég nái meiru lofti af en ekkert kom, báðar miðstöðvar heitar og hiti eðlilegur, hef enga trú á lofttappa

Startarinn wrote:Kipptu kaldstartspíssinum úr og athugaðu hvort hann er fastur opinn eða lekur


hvar finn ég hann minn kæri ?

Re: V6 4runner 3vze hjálp ?

Posted: 12.jan 2012, 00:59
frá Oskar K
Hjörturinn wrote:Svona lagar þú þetta fyrir fullt og allt:
http://www.pirate4x4.com/forum/showthread.php?t=137361&pp=30


já, útboraður 3vze með twincam heddum...
takk en takk samt

Re: V6 4runner 3vze hjálp ?

Posted: 12.jan 2012, 02:14
frá Hjörturinn
já, útboraður 3vze með twincam heddum...
takk en takk samt


5vz er nú töluvert meira en það

Re: V6 4runner 3vze hjálp ?

Posted: 12.jan 2012, 09:46
frá Startarinn
Oskar K wrote:
Startarinn wrote:Kipptu kaldstartspíssinum úr og athugaðu hvort hann er fastur opinn eða lekur


hvar finn ég hann minn kæri ?


Hann er á hliðinni á miðri sogreininni ofan við ventlalokið farþegamegin, það er líka möguleiki að ventillinn sem á að gefa auka loft, þegar þessi spíss er virkur, standi opinn. hann er á inngjafarhúsinu (sem inngjafarspjaldið er í) hann á að vera hitastýrður ef ég man rétt og hefur átt það til að festast opinn í þessum vélum.

Re: V6 4runner 3vze hjálp ?

Posted: 12.jan 2012, 22:32
frá grimur
Það gæti líka verið að leka inn loft með spíssum.
Ef ekkert finnst skv. ráðleggingum að ofan, rífðu þá soggreinina ofan af þangað til þú kemst í spíssana. Upp með þá og allar þéttingar, hreinsa útfellingar og drullu, smyrja smá í þéttingarnar (og kaupa nýjar, sem er betra), troða öllu saman uppá nýtt og vona það besta.

Núlla tölvuna með því að taka eymasambandið af í mínútu.

Taka stöðuna eftir 2-3 daga í notkun, þegar tölvan er búin að stilla sig upp á nýtt.

Þetta breytti alveg fullt hjá mér...munaði kannski 3-4 lítrum á hundraðið.

Re: V6 4runner 3vze hjálp ?

Posted: 14.jan 2012, 23:32
frá Oskar K
ég tók kaldræsispíssinn úr sambandi og það breytt engu, svo mig fór að gruna þennan ventil í spjaldhúsinu, hvernig athugar maður hann ? nú mig grunaði að hann stæði á sér og ég héllt á stóru skrúfjárni, svo ég tók endann á skrúfjárninu og bankaði duglega í spjaldhúsið
og viti menn, lausagangurinn datt niður í 1000 snúninga, en fór auvitað í það sama um leið og maður tipplaði á gjöfina.

veit einhver hvort það dugar að þrýfa þennan ventil eða þarf ég annan? og hvernig kemmst ég að honum ?

Re: V6 4runner 3vze hjálp ?

Posted: 15.jan 2012, 00:57
frá Startarinn
Nú man ég ekki hvort það er rofi í þessu til að gefa tölvunni upplýsingar um inngjafarstöðu, ef svo er, eru yfirgnæfandi líkur á að sá rofi sé að stríða þér fyrst það dugaði að banka í inngjafarhúsið, það eru nánast engar líkur á að það hefði breytt neinu varðandi þennan ventil þó hann væri fastur

Re: V6 4runner 3vze hjálp ?

Posted: 15.jan 2012, 00:58
frá Oskar K
það er TPS skynjari í honum já, þarf þá að redda mér öðrum og prufa