Síða 1 af 1

Öðruvísi 90 Cruiser

Posted: 10.jan 2012, 04:54
frá StefánDal
Djöfull væri ég til í einn svona þriggja dyra. Var þetta aldrei flutt inn?


Ég er handviss um að þeir yrðu mjög vígalegir á 38"


Image

Re: Öðruvísi 90 Cruiser

Posted: 10.jan 2012, 11:09
frá kjellin
þú getur nu bara allveg eins verið á súkku :p einsog þessu

Re: Öðruvísi 90 Cruiser

Posted: 10.jan 2012, 11:57
frá gislisveri
Ég hef 1-2 séð svona bíl á götunni hér heima, í bæði skiptin á útlenskum númerum.

Re: Öðruvísi 90 Cruiser

Posted: 10.jan 2012, 12:30
frá Sævar Örn
Hef 1x séð svona sem var þá á einhverjum kubbadekkjum og gulum númerum með svörtum stöfum, þekki ekki hvaðan það kemur

sá bíll hét Toyota Prado og mér skilst að þetta boddí beri stundum Lexus merki og sé fáanlegur með V8 bensínvél sem við sáum aldrei hérlendis í þessum bílum fyrr en 120 bíllinn kom

hef það nu samt á tilfinningunni að svona stuttur krúser sé ekkert mikið léttari en langur, rétt eins og gengur með pajeroana stuttur versus langur, þannig samanburður við Suzuki er hrein móðgun!

Re: Öðruvísi 90 Cruiser

Posted: 10.jan 2012, 12:33
frá gaz69m
áhugavert útlit á þessu , þetta er svona hálfkláraður cruiser ,

Re: Öðruvísi 90 Cruiser

Posted: 10.jan 2012, 13:13
frá StefánDal
Ég er alveg sammála því að samanburður á Súkku sé hrein móðgun. Sé ekki alveg hvernig hægt er að bera þessa bíla saman þó báðir séu stuttir á milli hjóla.
Þeir eru fáanlegir með 2.7 fjögurra sýlendra bensín vél, 3,4 V6 held ég og svo auðvitað 3.0Tdi.

Re: Öðruvísi 90 Cruiser

Posted: 10.jan 2012, 20:50
frá GylfiRunner
prado er land cruiser í sumum löndum. eins og 4runner er hilux surf

Re: Öðruvísi 90 Cruiser

Posted: 19.jan 2012, 17:48
frá kjellin
Sævar Örn wrote:r, þannig samanburður við Suzuki er hrein móðgun!


var ekkert að bera þettað saman við súkku, var að segja að efað menn vilja lítinn bíl þá er súkkan betri kosturinn