milligírasmíði/ kn sía


Höfundur þráðar
Heiðar Brodda
Innlegg: 623
Skráður: 08.mar 2010, 19:59
Fullt nafn: Heiðar Steinn Broddason
Bíltegund: 4Runner '87 38''
Staðsetning: Egilsstaðir

milligírasmíði/ kn sía

Postfrá Heiðar Brodda » 10.jan 2012, 02:32

sælir á einhver hérna teikningar af plötu sem fer á milli kassana í milligíra smíði og hitt hvernig er það að vera með kn síu í svona 2,4 efi hef heyrt að þetta sé fínt á veturna en alltof gróf sía á sumrin langaði að taka loft síu boxið burt og setja kn sí nánast beint á þar sem vélin tekur loft inná sig hef séð þetta á 3,0tdi mótor endilega koma með ykkar visku hugsunin hjá mér var að loftsíu boxið er svo neðarlega og hitt að styttri vegalengd fyrir loft er kaldara loft

kv Heiðar Brodda



User avatar

Bóndinn
Innlegg: 197
Skráður: 02.maí 2010, 10:28
Fullt nafn: Sigurgeir Runólfsson

Re: milligírasmíði/ kn sía

Postfrá Bóndinn » 10.jan 2012, 17:08

Sendi þér Es

Kv Geiri
Nissan Patrol 5.9 Cummins twin turbo 46"


Höfundur þráðar
Heiðar Brodda
Innlegg: 623
Skráður: 08.mar 2010, 19:59
Fullt nafn: Heiðar Steinn Broddason
Bíltegund: 4Runner '87 38''
Staðsetning: Egilsstaðir

Re: milligírasmíði/ kn sía

Postfrá Heiðar Brodda » 10.jan 2012, 19:21

myndi allt í einu að ég er með loftflæði skynjara og get því ekki átt við loftinntakið flott að svar sér sjálfur kv Heiðar B

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: milligírasmíði/ kn sía

Postfrá Stebbi » 10.jan 2012, 20:02

Má ekki færa loftflæðiskynjaran??
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"


olei
Innlegg: 815
Skráður: 30.apr 2011, 01:41
Fullt nafn: Ólafur Eiríksson

Re: milligírasmíði/ kn sía

Postfrá olei » 10.jan 2012, 20:15

Ég hef almennt séð verulegar efasemdir um gagnsemi K&N sía - utan að það er stundum mjög stutt og þægileg leið að nota svoleiðis í mixi þegar maður kemur ekki öðru fyrir.

Lesa má löng rifrildi víða á netinu um hvort að þær séu nægilega góðar fyrir framan loftflæðiskynjara eða jafnvel túrbínur, hvort að aflaukningin sem þær gefa felist helst í því að ökumaðurinn upplifi aukinn hávaða sem aflaukningu os. frv. Látum það vera.

Hinsvegar veit ég að í geggjuðu veðri og byl pakkast opnar síur stundum fljótlega upp (þær eru reyndar ekki einar um það) og þær hleypa öllum vatnsaustri sem kann að eiga sér stað í húddinu greiðlega beint inn á mótor. Nokkuð sem getur verið ókostur í vatnabrölti - t.d þegar maður sér úðann frá viftuspaðanum í formi gufumökks í speglunum.

User avatar

StefánDal
Innlegg: 1224
Skráður: 23.mar 2010, 21:21
Fullt nafn: Stefán Hrannar Dal Björnsson
Bíltegund: Toyota Hilux

Re: milligírasmíði/ kn sía

Postfrá StefánDal » 10.jan 2012, 20:54

Loftsíur hafa verið færðar alveg að soggrein á 22RE. En þá færir maður að sjálfsögðu loftflæðiskynjaran líka.


Höfundur þráðar
Heiðar Brodda
Innlegg: 623
Skráður: 08.mar 2010, 19:59
Fullt nafn: Heiðar Steinn Broddason
Bíltegund: 4Runner '87 38''
Staðsetning: Egilsstaðir

Re: milligírasmíði/ kn sía

Postfrá Heiðar Brodda » 10.jan 2012, 22:11

já þarf að skoða þetta aðeins og bóndi bíð eftir es dæminu ;)


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 59 gestir