Síða 1 af 1

Skipta um viftureim

Posted: 03.jan 2012, 11:47
frá afc
Hæhæ

Vitið þið hvar er ódýrast að skipta um viftureimar ?
Skiptir einhverju máli hvaða tegund viftureimin er, er einhver verri eða betri en önnur ?

Re: Skipta um viftureim

Posted: 03.jan 2012, 11:52
frá HaffiTopp
Hvernig bíll og hvernig vél? Getur örugglega gert þetta sjálfur eða þá fengið [ókeypis] hjálp við þetta hjá einhverjum sem kann þetta.
Kv. Haffi

Re: Skipta um viftureim

Posted: 03.jan 2012, 11:57
frá afc
Ég er með Trooper, ég kann ekkert í bílum eins og hefur komið hér fram en langar að kunna eitthvað smávegis allavega til að geta reddað mér, er bara svo hræddur um að skemma eitthvað ef ég ríf eitthvað í sundur :)

Vélin er 3.0 eitthvað

Re: Skipta um viftureim

Posted: 03.jan 2012, 15:34
frá AgnarBen
Þeir hjá smurstöðinni Klöpp taka að sér svona smotterís verk fyrir sanngjarnan pening, þeir eru í Vegmúla 4.