Síða 1 af 1

Áhugaverð heimildarmynd um þyrlusveit Landhelgisgæslunnar

Posted: 26.des 2011, 00:21
frá Svenni30
http://www.kgb.is/utkall-alpha/

Þörf og góð heimildarmynd.

Forgangsljós og hljóð fyrir þessa menn og það strax.

Re: Áhugaverð heimildarmynd um þyrlusveit Landhelgisgæslunnar

Posted: 26.des 2011, 10:37
frá birgthor
Þetta er ekkert flókið, þeir skrá bíla þeirra sem eru á þyrluvakt á kennitölu LHG og þá geta þeir útbúið bílana með ljós og hljóð-merkjum.

Eða að LHG skaffar þeim sem eru á bakvakt bíla og þeir bílar verði útbúnir með þessum búnaði.


Hinsvegar tíðkast ekki að menn séu með þess konar búnað á einkabílum.

Re: Áhugaverð heimildarmynd um þyrlusveit Landhelgisgæslunnar

Posted: 26.des 2011, 11:17
frá vignirbj
Samkvæmt lögunum sem lesið var úr, er til heimild til þess að setja forgangsljós á einkabíla sem notaðir við björgun en af einhverjum óskiljanlegum hvötum veitir samgönguráðuneytið þeim ekki heimild til þess

Re: Áhugaverð heimildarmynd um þyrlusveit Landhelgisgæslunnar

Posted: 26.des 2011, 11:33
frá Hilmar Örn
Hér er video af gæslunni að ná í slasaðan sjómann þar sem notaðar eru 2 þyrlur, þær koma þegar c.a 3 mín eru búnar af myndinni.


http://www.youtube.com/watch?v=0rydTGtrkwA&feature=player_embedded

[youtube]0rydTGtrkwA[/youtube]

Re: Áhugaverð heimildarmynd um þyrlusveit Landhelgisgæslunnar

Posted: 26.des 2011, 11:42
frá Hilmar Örn
Ég styð að sjálfsögðu að gæslan fái forgangsljós alveg eins og björgunarsveitir, enda er gæslan björgunarsveit á þyrlu.