Síða 1 af 1
Eyðsla 4x4 econoline
Posted: 15.des 2011, 20:34
frá toni guggu
Sælir. Hvað er 4x4 35" econoline 8 cyl bensín 2,5 tonn að þyngd að eyða ??
kv Toni.
Re: Eyðsla 4x4 econoline
Posted: 15.des 2011, 21:07
frá bragig
Faðir minn á svona Econline 350 4x4 38" með 351 Windsor innspýtingarvél og C6 skiptingu. Með ýktum sparakstri dettur hann niður í 20L/100 í langkeyrslu.
Re: Eyðsla 4x4 econoline
Posted: 16.des 2011, 00:08
frá toni guggu
Já þeir framleiða örugglega ekki bensín, maður er búin að heyra sögur um alveg niður í 16-17 lítra.
kv Toni
Re: Eyðsla 4x4 econoline
Posted: 16.des 2011, 13:47
frá RúnarA
Ég er með stuttan van árg. 2005, 4,6 lítra vél 2340 kg tómur og bara afturdrif.
Á 2200 km fór hann með 320 lítra sem er 14,5 l/100 km. mest akstur á malbiki á eðlilegum umferðarhraða með nokkrum útúrdúrum td. í Loðmundarfjörð. var með léttan tjaldvagn aftaní meirihlutann af þessum akstri. Það væri fróðlegt að fá tölur af sambærilegum akstri á 4x4 bíl, stefni á að framdrifsvæða minn.
Kv Rúnar
Re: Eyðsla 4x4 econoline
Posted: 16.des 2011, 18:55
frá toni guggu
ok ég vil eiga möguleika á að komast aðeins útfyrir malbik án þess að lenda í vandræðum þannig að það verður að vega og meta jeppi og tjaldvagn eða 4x4 húsbíll og þá finnst mér econoline álitlegur kostur en er eitthvað sem þarf að varast sérstaklega í þessum bílum ?
kv Toni.