Síða 1 af 1
					
				túrbínu væðing
				Posted: 15.des 2011, 19:55
				frá kalliguðna
				Sælir félagar, ég er með smá spurningu til þeirra sem þekkja til en málið er að mig langar að túrbovæða grútloppinn grútarbrennara sem er u.þ.b 2,2 lítrar og max snúningur er um 4þús. snúningar á min. gétur maður sett hvaða túrbínu sem er í gripinn ????? 
Hjálp væri vel þegin.
kv:kalli
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 15.des 2011, 20:17
				frá spámaður
				ég myndi reyna að finna túrbínu úr bíl með svipaða vélarstærð.ef þú setur of stóra bínu mun hún verða þung af stað og koma seint inn og blása kannski heldur of mikið fyrir þessa vél þó að það sé hægt að stýra því eitthvað.
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 15.des 2011, 20:36
				frá kalliguðna
				En hvað með snúninginn á vélinni , nú snýst hún frekar hægt, er ekki nauðsinlegt að fá túrbínu sem kemur fljótt inn.???
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 15.des 2011, 21:41
				frá gaz69m
				hvaða vél ertu að túrbínuvæða
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 15.des 2011, 21:45
				frá kalliguðna
				sælir, það er vél í ssangyong famile 2,2 ca. mér skilst að það sé gamla isuzu vélin ca. 70 hp.
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 15.des 2011, 23:52
				frá toni guggu
				Smá forvitni en er þetta sami kalli og var að vinna í straumsvík fyrir nokkrum árum ??
kv Toni
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 16.des 2011, 17:19
				frá kalliguðna
				já og fékk viðurnefnið Kalli kærulausi af óvönduðum mönnum, það er varla hægt að segja að það sé arða af kæruleysi í mér,,,,,,,, nema þá kannski eftir 3-7 öllara en nú er maður u.þ.b. hættur öllu svoleiðis sulli !! ,,,,,,,,, nema við MJÖG hátíðleg tækifæri.
hver er sá sem spyr ????? ekki er þetta Toní kvennaskelfir?????
kv Kalli sárasjaldankjærulausi
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 16.des 2011, 18:47
				frá toni guggu
				Sæll meistari jú kvennaskelfir eða eldhöfði hvort tveggja sami maðurinn, gaman að hitta á þig hérna.
kv Toni.
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 16.des 2011, 18:52
				frá kalliguðna
				hahaha já gaman að hitta þig hérna , ertu eitthvað að jeppast og hvernig er það hefur þú eitthvað vit á svona túrbínu pælingum.???
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 16.des 2011, 19:01
				frá toni guggu
				Sæll elsku kallinn, ég er nú bara á 33" jeppa og fer mikið á sumrin, en ekki hef ég nú mikið vit á túrbínum en hefur þú haft samband við ljónstaðabræður þeir eru nokkuð glúrir hef ég heyrt.
kv Toni
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 16.des 2011, 19:10
				frá kalliguðna
				Jú það er náttúrulega best að tala beint við fagmenn um málið en það er oft fullt af fræðingum á þessu spjalli svo það sakar ekki að ath. hvað menn vita og fá góð ráð . En þú verður að breita titil nafninu í ELDHÖFÐI ,,!!!! er það ekki mikið flottara.??? nee segi bara svona.
kv:Kalli kærulausi
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 16.des 2011, 19:16
				frá toni guggu
				Já það eru margir klárir kallar hérna á spjallinu og alveg til í að aðstoða við hin ýmsu vandamál, og jú eldhöfði er langflottast
kv Eldhöfði
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 16.des 2011, 20:59
				frá gaz69m
				veistu hvað eru margar legur á sveifarásnum hjá þér er víst að vélin þoli túrbínu væðingu
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 16.des 2011, 22:16
				frá Kiddi
				Eins túrbínur og menn hafa verið að nota á 2.4 Toyotu hljóta að virka svipað vel á 2.2 SsangYong. Toyotan er ca 70 hestöfl ef ég man rétt turbolaus.
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 16.des 2011, 23:24
				frá kalliguðna
				sælir félagar. nei ég veit ekki hvað margar legur eru í vélinni en er tilbúinn að taka smá áhættu með að túrbóvæðann og hvað hann þolir verður bara að koma í ljós .já eg var að gæla við hvort ekki væri auðvelt að komast yfir bínu úr toyotu  og hvort hún væri nokkuð of stór.
en svo er það spurningin um snúninginn á vélinni , nú snýst þetta grei svo ósköp hægt að ég var að spá hvort hann myndi snúa túrbínu sem kemur SEINT inn . en takk fyrir kommentin
kv:Kalli
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 16.des 2011, 23:26
				frá Kiddi
				Það eru ekki margar díselvélar sem fara mikið yfir 4000
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 16.des 2011, 23:31
				frá kalliguðna
				þá er bara að fara og finna eina túrbínu og vona það besta . takk fyrir mig 
kv Kalli turbo
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 16.des 2011, 23:45
				frá toni guggu
				Vonandi gengur þetta upp hjá þér kalli, leifðu mér að fylgjast með.
kv Eldhöfði
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 17.des 2011, 10:20
				frá stjani39
				er túrbína úr terrano 2    2,7L ekki bara passleg í verkefnið
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 17.des 2011, 19:04
				frá kalliguðna
				sælir , ég er að spá í eina turbinu úr 2,5 pajero en ekkert ákveðið. ætla að spekulera yfir jólin.
kv:Kalli
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 17.des 2011, 21:07
				frá Grímur Gísla
				Fáðu þér túrbínu úr 1,9 eða 2,0 l td skoda eða VW þær ættu að koma inn um 1200 sn/mín.  Ég prófaði Subaru 1800 túrbínu og byrjaði hún að blása í um 2000 sn/mín svo fékk ég Túrbínu úr Landcruser ll   2,4l þá kom hún inn í um 1700 sn/mín. Þetta var sett í Mússó 2,3.
2,5 túrbínan kemur seinna inn en Famely túrbínan og 2,7 kemur svo enn seinna inn.  Ef þú finnur túrbínu úr bensínvél þá þarf það að vera úr vél sem er um 15oo cc.
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 17.des 2011, 21:25
				frá kalliguðna
				takk fyrir þetta Grímur, þetta hjálpar mikið. og eykur mögul. mikið. nú fær maður meira til að vinna úr.þúsund þakkir
kv Kalli
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 17.des 2011, 21:27
				frá dabbigj
				Myndi taka túrbínu af 2-2.5l diesel görmum og líklegast vænlegast fyrir þig að finna þær, eldri og vitrari menn segja mér að það sé hætta á því að þegar túrbína er sett við þessar  vélar að þær hafi verið að hrynja þegar þær eru þandar yfir 4.500 snúninga.
10psi væri flott boost og endilega láttu vita hér hvernig fer.
			 
			
					
				Re: túrbínu væðing
				Posted: 17.des 2011, 21:44
				frá kalliguðna
				takk fyrir þetta , já maður verður að láta vita hvernig fer , ekki spurning. takk en og aftur félagar.
kv:Kalli