Síða 1 af 1

Tjón í spottadrætti og festu.

Posted: 12.des 2011, 17:56
frá SigmarP
Hvernig er best að snúa sér með tjón á bíl eftir að spotti slittnar og skemmir bíl.
Hver ber ábyrgðina? Tryggingar félag bílsins sem dregur eða sá sem er dreginn?

Re: Tjón í spottadrætti og festu.

Posted: 12.des 2011, 18:02
frá BrynjarHróarsson
sá sem dregur ber ábyrðina, en afturá móti tala menn í amk 4x4 um heiðursmannasáttmálan þar sem hver tekur ábyrð á sínu eiginn tjóni við drátt. ég mundi aldrei draga nokkurn mann aftur ef ég væri brenndur á þessu.

Re: Tjón í spottadrætti og festu.

Posted: 12.des 2011, 18:05
frá arni87
Samkvæmt lögum er það triggingafélag þess sem dregur.

Persónulega fer ég eftir "heiðursmanns reglunni" Hver afgreiðir tjón á sínum bíl/hlut.
Rökin fyrir að þessi regla er rökrétt er sú að þú ert fastur, ég býð framm aðstoð.
Án aðstoðarinnar losnaru ekki fyr en seint og síðar meir, sem er alltaf valkostur fyrir þig.
Ég BÝÐ framm bílinn minn, svo er það samkomulag okkar á milli hvor skaffar spottan ef báðir hafa spotta.

Þar með er þetta rökréttara lögmál, og þegar ég "lærði" að ferðast á fjöllum var þetta kallað sjálfsagt mál, en það er því myður að breytast.

Re: Tjón í spottadrætti og festu.

Posted: 12.des 2011, 18:32
frá andrig
Þetta eru samt fáranlegar reglur að sá sem dragi beri ábyrgð, hver í ósköpum ákvað það?
Það ætti þá frekar að vera á hinnbóginn

Re: Tjón í spottadrætti og festu.

Posted: 12.des 2011, 18:36
frá -Hjalti-
þetta er hressandi...

Re: Tjón í spottadrætti og festu.

Posted: 12.des 2011, 18:37
frá SigmarP
Hjalti_gto wrote:Etta er hressandi...

..?

Re: Tjón í spottadrætti og festu.

Posted: 12.des 2011, 19:09
frá kjellin
en nú er eitt semað ég er að velta fyrir mér, nú hefur verið talað um heiðursmannaregluna, semað ég hef svo sem haft i huga þegar ég dreg, en svo er eitt í þessu semað ég var að spá segjum sem svo að ég myndi draga mann semað væri með prófílbeisli en ekki nógu vel smíðað og það gefur sig við dráttin og rústar afturhlera á mínum bíl varla er það mér að kenna samkvæmt tryggingafélugunum,

Re: Tjón í spottadrætti og festu.

Posted: 12.des 2011, 19:12
frá bjornod
andrig wrote:Þetta eru samt fáranlegar reglur að sá sem dragi beri ábyrgð, hver í ósköpum ákvað það?
Það ætti þá frekar að vera á hinnbóginn


Þetta eru bara einföld umferðarlög:

"88. gr. Sá sem ábyrgð ber á skráningarskyldu vélknúnu ökutæki skal bæta það tjón sem hlýst af notkun þess enda þótt tjónið verði ekki rakið til bilunar eða galla á tækinu eða ógætni ökumanns. Ábyrgðarmaður dráttartækis er skaðabótaskyldur ef tjón hlýst af þegar skráningarskylt vélknúið ökutæki dregur annað ökutæki."

http://www.althingi.is/lagas/nuna/1987050.html

Re: Tjón í spottadrætti og festu.

Posted: 12.des 2011, 20:00
frá Hjörturinn
þið verðið að hugsa þetta út frá orðalaginu "..vélknúið ökutæki dregur annað ökutæki..."

ímyndið ykkur bíl að draga annan bíl í umferð, hvor ætti að bera ábyrgðina þá?
Augljóslega sá sem dregur þar sem hann ræður ferðinni.

Þetta er sett undir sama hatt, væri kannski lag að fá annað orðalag á þetta þannig það sé sértilvik þegar maður er að losa menn úr festu en ekki "draga" lengir vegalengdir.

Re: Tjón í spottadrætti og festu.

Posted: 12.des 2011, 21:00
frá kalliguðna
sælir. þÓ ég sé fylgjandi heiðursmannasamkomulaginu þá fynnst mér einn stór galli á því og það er að við erum að fría tryggingafélögin fyrir að bæta tjónið sem við erum þó búnir TRYGGJA okkur fyrir með háum fjárhæðum. En eins og fyrr segir er æði hart að sá sem hjálpar beri svo allan kostnað ef tjón verður.
kv Kalli

Re: Tjón í spottadrætti og festu.

Posted: 12.des 2011, 23:09
frá Hfsd037
SigmarP wrote:
Hjalti_gto wrote:Etta er hressandi...

..?


http://www.facebook.com/#!/photo.php?fb ... =3&theater