Síða 1 af 1

Ykkur er boðið kæru félagar!!!

Posted: 06.des 2011, 21:32
frá glanni
Þá er blásið til útgáfuteitis vegna bókar- og kvikmyndarinnar: Þar sem himinn frýs við jörð. Bílar og áhafnir verða á staðnum, Rithöfundurinn les það sem honum finnst vel hafa til tekist hjá sér, Tónskáldið Dóri Braga (í vinum Dóra) leikur svo við hvurn sinn fingur á gítarinn, sagðar verða sögur um það sem ekki var hægt að setja á prent og svo verður maður manns gaman.
Áhugasamir meira en velkomnir, húsrúm er mikið hlökkum til að sjá persónurnar á bak við póstana alla sem við höfum fengið ljóst og leynt.
Útgáfuteitið er sem sagt á föstudaginn 9 des frá kl 17 til 19 að Stórhöfða 35 hjá Aron og Bigga, Jeppaþjónustan Breytir. Bókin verður boðin þar á vinaverði.

Kveðja,
Halldór Sveinsson
www.arctictrails.is

Re: Ykkur er boðið kæru félagar!!!

Posted: 07.des 2011, 00:17
frá Freyr
Þakka boðið Dóri. Skoðaði bókina í dag í bókabúð of líst mjög vel á hana, er búinn að setja hana á jólaóskalistann ;-) Hlakka til að kíkja á ykkur á föstudaginn.

Kveðja, Freyr

Re: Ykkur er boðið kæru félagar!!!

Posted: 07.des 2011, 00:53
frá glanni
Gaman að heyra það Freyr að þér skuli lítast vel á þetta hjá okkur, við vönduðum okkur líka :) hlakka að sjá framan í þig líka.

Re: Ykkur er boðið kæru félagar!!!

Posted: 07.des 2011, 18:00
frá Járni
Flott þetta, ég er spenntur að komast í þessa bók.

Re: Ykkur er boðið kæru félagar!!!

Posted: 07.des 2011, 22:36
frá Snorri Freyr
Takk fyrir gott boð, Reikna með því að kíkja við.. hún er klárlega á mínum lista

KV

Snorri Freyr

Re: Ykkur er boðið kæru félagar!!!

Posted: 08.des 2011, 00:17
frá glanni
þið eruð bara snillingar!! hlakka til að sjá ykkur, það verður ekkert nema tóm hamingja þarna á föstudaginn :)

Re: Ykkur er boðið kæru félagar!!!

Posted: 09.des 2011, 23:23
frá glanni
Við félagarnir hjá Heimskautafélaginu Arctictrails þökkum ykkur sem mættuð á útgáfuteitið okkar
Við brosum út að eyrum yfir viðtökum á bókinni/myndinni okkar ,,Þar sem himinn frís við jörð,,

Kveðja,
www.arctictrails.is