Síða 1 af 1
sælir hvar fær maður plexi gler
Posted: 20.nóv 2011, 21:05
frá siggi.almera
hvar fær maður svona snillingar
Re: sælir hvar fær maður plexi gler
Posted: 20.nóv 2011, 21:07
frá jeppakall
plexigler í reykjanesbæ þeir græja nánast hvað sem er úr plexi
Re: sælir hvar fær maður plexi gler
Posted: 20.nóv 2011, 21:07
frá -Hjalti-
Re: sælir hvar fær maður plexi gler
Posted: 20.nóv 2011, 22:37
frá Sævar Örn
Fást
http://fast.isÞeir eru þeir einu sem eru til í að búta niður plötu og selja smáeiningar fyrir mann sem eg fann þegar eg var ad leita en eiga líka stærðarinnar plötur
svo virðist þetta líka vera eina plastfyrirtækið sem hefur eðlilegan afgreiðslutíma
Re: sælir hvar fær maður plexi gler
Posted: 20.nóv 2011, 22:41
frá Forsetinn
þessir smíða allt úr plasti
http://www.akron.is/
Re: sælir hvar fær maður plexi gler
Posted: 21.nóv 2011, 16:44
frá ellisnorra
Þetta er athyglisvert, mig vantar einmitt að endurnýja ónýtt plexigler í pallhús afturhleranum hjá mér og ég sendi eftirfarandi póst á akron, fast og plexigler, þessa þrjá sem minnst er hérna að ofan.
Góðan dag.
Mig vantar að endurnýja plexiglerið í afturglugganum á pallhúsinu á hiluxnum mínum. Stærðin er 130cm á breidd þar sem það er breiðast og svo mjókkar það upp um nærri 10cm hvoru megin. Hæðin er 46.5cm. Með þykktina er ég ekki viss á, 4-5mm, hvað eru menn að taka í þetta?
Mig vantar verðhugmynd, í framhaldinu mun ég þá taka mót af gömlu í pappa og koma til ykkar til að fá réttan útskurð.
Svörin voru eftirfarandi:
Akron: Þessi plata kostar Kr. 10.000.- með vsk. miðað við 5mm. glært Plexi.
Fást: Þykktin fer eftir því hvað passar í kantinn á rúðunni.
Ef við gerum ráð fyrir 5 mm, þá atti verðið að vera uþb 12.000 m/vsk.
Plexigler: verðið er cr 20.000.- 5mm glært
Kv. Neytendavaktin :)
Re: sælir hvar fær maður plexi gler
Posted: 21.nóv 2011, 16:58
frá Þorri
Plexigler er reyndar ekkert sérlega heppilegt í þetta þar sem það rispast mjög auðveldlega. Einn þvottur með kústinum og þú ert hættur að sjá út um rúðuna.
Mér var sagt að poly carbonat ( nú hef ég ekki hugmynd um hvort þetta er rétt skrifað hjá mér) væri betra í þetta. Það er mun harðara efni og rispast þessvegna síður en er að sama skapi mikið dýrara. Hefur einhver prufað að smíða ál ramma og setja alvöru gler í þetta? Það er kannski bara dýrt og alltof þungt?
Kv. Þorri.