Síða 1 af 1

daihatsu feroza

Posted: 16.nóv 2011, 13:07
frá kiddi091
var að fá mér ferozu og er alveg nýr í þessu en er eitthver hérna sem veit hversu stór dekk ég get fengið mér undir hana ef hún er alveg orginal , og hvaða dekkjastærð hentar best ?

Re: daihatsu feroza

Posted: 16.nóv 2011, 14:37
frá joisnaer
ég átti einu sinni þannig bíl og var með 31" undir honum, þau rákust aðeins uppí þegar hann var í fullri beygju en annars var alveg allt í lagi að keyra á þeim venjulega. og það var nú alveg mesta furða hvað hann komst í snjó á þessum tuðrum.

Re: daihatsu feroza

Posted: 16.nóv 2011, 16:14
frá kiddi091
þessi sem var á 31" var hún alveg óbreytt ?

Re: daihatsu feroza

Posted: 16.nóv 2011, 18:48
frá Sævar Örn
Það sem þú getur gert er að skrúfa fjöðrunina upp að framan á vindustöngunum, lengt demparana og síkkað samsláttinn, skorið helling úr og sett kanta

fært fjaðrirnar ofaná afturhásinguna og snúa hengslunum við þarft að fá aðeins lengri bremsuslöngu á hásinguna og lengja dempara og síkka samslátt.

Svo færðu þér 15x10" felgur og 33x12,5x15" dekk og þá ertu kominn með svona fjallajeppagræju, ekkert hefur verið átt við hlutföll í þessum tiltekna bíl og hann virkar ágætlega.

Image

Re: daihatsu feroza

Posted: 16.nóv 2011, 19:13
frá kiddi091
og að gera þetta sem þú varst að seigja er ekkert mál ?

Re: daihatsu feroza

Posted: 17.nóv 2011, 04:35
frá joisnaer
kiddi091 wrote:þessi sem var á 31" var hún alveg óbreytt ?


alveg orginal.skar aðeins úr staðaranum að framan ef ég man rétt

Re: daihatsu feroza

Posted: 21.nóv 2011, 22:38
frá BragiGG
kiddi091 wrote:og að gera þetta sem þú varst að seigja er ekkert mál ?


þú bara berð hvalbakinn í drasl með sleggju og skerð afturbrettið og frambrettið með slípirokk.. síður síðan einhvað smá fyrir gatið sem myndast í afturbrettinu og kíttar svo rest... græna bílnum hérna fyrir ofan var breytt þannig, tók um 5 tíma og virkaði fínt :)

Re: daihatsu feroza

Posted: 16.okt 2015, 18:07
frá SverrirG
Dóttir mín er á einum svona, lækkaður og á 30" á 10" breiðum felgum. Þurftum að snyrta aðeins af neðra horni framstuðarans og eitthvað smá að aftanverðu. Tók svona korter max. Svo ef þú ert á 31" á 8" breiðum ímynda ég mér svipað föndur.