Síða 1 af 1
nýtt íslenskt eldsneyti
Posted: 15.nóv 2011, 22:18
frá Andri M.
Re: nýtt íslenskt eldsneyti
Posted: 15.nóv 2011, 22:55
frá elfar94
þetta lofar góðu finnst mér
Re: nýtt íslenskt eldsneyti
Posted: 15.nóv 2011, 23:12
frá StefánDal
Fint ad hella tessu a fyrir skodun:)
Re: nýtt íslenskt eldsneyti
Posted: 15.nóv 2011, 23:15
frá Sævar Örn
Lofar góðu fyrir bíla með plasttanka og plastlagnir, tæringarvörnin er nánast engin og þetta er eins og vatn tankurinn verður haugryðgaður að innan og stíflast, þekkt vandamál með "imports" og gamla bíla í ameríku en þeir nota svona bensín mjög mikið
Re: nýtt íslenskt eldsneyti
Posted: 16.nóv 2011, 00:47
frá btg
Aðeins hægt að kaupa á einum stað í borg óttans og það er 2 kr ódýrara en venjulegt bensín. Sæll!
Samt á þetta að draga úr innflutningi á bensíni (+ þar) og dregur úr mengun (+þar).
Ef menn ætla að koma með eitthvað svona og fá fólk til að nota það, þá þarf gulrót, 2 krónur eru bara grín þar sem fólk er að fá uppí 10 krónur með lyklum, hálsmennum og hvað þetta heitir allt saman á innflutta og mengandi vökvan, jafnvel hjá 'nýjum' stöðvum sem lofuðu bensínstríði á sínum tíma og maður tók þátt í að sitja í biðröð eftir að fá vökvann.
Þetta verður allt skattlagt til dauðans í lokin, áfram sitjum við með ónýta vegi sem öll þessi gjöld eiga að fara í að sinna.
Ætli metan verði ekki orðið dýrara en bensín þegar nógu margir bílar verða farnir að nota það eins og með bensín vs dísel hérna um árið. Dísell er rúmlega 10 krónum dýrari í dag hérna heima...
Re: nýtt íslenskt eldsneyti
Posted: 18.nóv 2011, 18:33
frá Andri M.
leiðrétting dísellinn er tæpum 15 krónum dýrari
og tvær krónur er ekki nóg til að eg hætti í þessu gamla góða bensíni og fari í þessa tilraunastarfsemi, þetta yrði allaveganna að vera undir 200 kr ef maður ætti að gefa þessu séns, það er mín skoðun
Re: nýtt íslenskt eldsneyti
Posted: 20.nóv 2011, 23:18
frá dabbigj
Tærir víst mótora, lagnir og allt sem að þetta kemst í tæri við og kanarnir eru margir mjög fúlir með þetta.
Re: nýtt íslenskt eldsneyti
Posted: 21.nóv 2011, 00:37
frá Startarinn
Er þetta ekki bara 5% blanda?
Það ætti ekki að valda miklum vandræðum, það sem kaninn notar er E85 og er 85% blanda, það þarf að mappa innspítingarnar uppá nýtt fyrir það eldsneyti og plúsinn við það er að maður kemst upp með gríðar háa þjöppu á því eldsneyti, miðað við það sem ég hef lesið inná turbobricks.com eru þeir með allt að 12:1 í þjöppu á túbóbílum sem koma orginal með 8,7:1 frá verksmiðju