Síða 1 af 1

2. Ljósmyndakeppni

Posted: 04.apr 2010, 14:32
frá Járni
Sælt veri fólkið!

Nú er kominn tími á aðra ljósmyndakeppni jéppaspjallsins.

Hér ber að líta sigurmyndina úr síðustu keppni.
IMG_0893.JPG

Davíð Þór Sigurðsson hlaut að launum hið prýðilegasta tappasett.

Í þetta skiptið eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin.

Í 1. verðlaun er útprentun á sigurmyndinni hjá Pixlar ehf. Myndin verður prentuð á strigaefni að flatamáli 30cm x 45cm og er að andvirði 6.675 kr.
pixlar.png
pixlar.png (25.38 KiB) Viewed 10500 times


í 2. verðlaun er inneign á klippingu hjá Rebel klippibúllu.
Rebel logo.jpeg
Rebel logo.jpeg (33.53 KiB) Viewed 10498 times


í 3. verðlaun verður brotið og líklega hálfétið, páskaegg í boði jéppaspjallsins.

Sem áður er lítið um reglur og skilyrði, þó verður myndin að vera eign innsendanda og sem verður að vera skráður notandi jéppaspjallsins.
Ein mynd á hvern þáttakanda.

Þema keppnarinnar er það sama og í fyrri keppni, ferðalög innanlands eða jéppatengdar myndir.
Undanfarnar vikur hafa boðið upp á næg tækifæri á glæsilegum myndum af fágætum atburðum svo búast má við

Myndir skulu sendast ásamt fullu nafni, notendanafni hér á vefnum á netfangið: keppni@jeppaspjall.is
Æskilegt er að láta fylgja með upplýsingar um hvenær myndin var tekin, hvar og stutta lýsingu ef það á við.
Sú breyting verður þó frá síðustu keppni að þegar komið er að kosningu verða myndirnar nafnlausar.

Tekið er við myndum fram á næstu helgi, tilkynnt verður þegar hætt er að taka við.


Með von um góða þátttöku, Árni

Re: 2. Ljósmyndakeppni

Posted: 09.apr 2010, 10:22
frá gislisveri
10 myndir komnar í keppnina skv. nýjustu tölum :)

Re: 2. Ljósmyndakeppni

Posted: 09.apr 2010, 13:37
frá Phantom
Myndin í auglýsingunni er klárlega vinningsmynd >:)

Re: 2. Ljósmyndakeppni

Posted: 09.apr 2010, 14:40
frá gislisveri
Ekki spurning, verst að ljósmyndarinn er óæskilega tengdur keppninni. Spurning hvort það verði fyrirsætuverðlaun?

Re: 2. Ljósmyndakeppni

Posted: 10.apr 2010, 12:02
frá Phantom
Þigg þau

Re: 2. Ljósmyndakeppni

Posted: 10.apr 2010, 17:11
frá Járni
BUMP á þetta.
Lokað verður fyrir innsendingu mynda seinnipart á morgun ásamt því að kosning hefst. Um að gera að nota leiðindaveðrið til að tæma úr myndavélunum.

Re: 2. Ljósmyndakeppni

Posted: 11.apr 2010, 22:51
frá Járni
Nú er lokað fyrir innsendingar, kosning hefst innan skamms.