Síða 1 af 1

Skemmtileg frétt á DV

Posted: 09.nóv 2011, 20:22
frá stjanib
Athyglisverð frétt, ég er nú alveg sammála að það sé kominn tími á aðra manneskju í þennan ráðherrastól

http://www.dv.is/frettir/2011/11/9/jepp ... rra-dauda/

Re: Skemmtileg frétt á DV

Posted: 09.nóv 2011, 20:32
frá -Hjalti-
frétt???

Re: Skemmtileg frétt á DV

Posted: 09.nóv 2011, 21:08
frá arni hilux
en afhverju þurfti að nafngreyna mennina sem skrifuðu þetta!!

Re: Skemmtileg frétt á DV

Posted: 09.nóv 2011, 21:12
frá jeepson
arni hilux wrote:en afhverju þurfti að nafngreyna mennina sem skrifuðu þetta!!


Ef að ég hefði skrifað þetta. Þá hefði mér nú verið svo drullu sama um hvort að ég hefði verið nafngreyndur.

Re: Skemmtileg frétt á DV

Posted: 09.nóv 2011, 21:23
frá arni_86
Mèr finnst thessi setning segja svo rosalega mikid um hugsanagangin hjà "nàttùruverndarsinnum"

„Ráðherra getur í reglugerð, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar, takmarkað eða bannað akstur á jöklum og frosinni og snævi þakinni jörð þar sem hætta er á náttúruspjöllum eða óþægindum fyrir aðra sem þar eru á ferð.“

S.S thad er ì gòdu lagi ad banna jeppa ef thad veldur òthægindum fyrir einhverja sem eru à rølti eda skìdum.

Madur getur kanski kyngt tvi ad einhverjir slòdar verdi bannadir og svædi fridlyst en ad banna akstur à snævi thaktri jørd finnst mèr bara bull.

Re: Skemmtileg frétt á DV

Posted: 10.nóv 2011, 14:37
frá bragi

Re: Skemmtileg frétt á DV

Posted: 10.nóv 2011, 15:28
frá gaz69m
mér finst þetta fáránlegt að ekki meigi keyra á frosinijörð og þetta að ekki á jökklum er eithvað í toppstykkinu á þessum ráðherra en hvað með einsog ein góður gangnamaður til 40 ára benti á að eftir því sem gaunguskórnir hefðu orðið harðari þá skildu þeir meira eftir sig en td fjórhjól , bull og vitleysa er þetta þetta má aldrei verða eða það verður að berja á næstu ríkisstjórn að fella þessa vitleysu úr gildi . næst lætur hún örugglega sekta mig fyrir að skemma andrúmsloftið með að reka við

Re: Skemmtileg frétt á DV

Posted: 10.nóv 2011, 19:45
frá jeepson
Einmitt fyndið að pæla í því að það sé einmitt verið að tala um að um að eyðileggja landið. Ég get bara ekki séð hvernig maður fer að því að eyðileggja landið við að keyra kanski ofan á 2metra snjó. Þetta er bara heimskulegt, og það má ekki gleyma því að fólk með þessa göngu stafi sína skemmir líka landið okkar þar sem að það er að pota upp alt með þessum stöfum sínum. Nú hestar spæna upp landið líka. En við verðum kanski að fara ða setja fætur undir jeppana okkar í staðin til að meiga nota þá annarsstaðar en á malbikinu.

Re: Skemmtileg frétt á DV

Posted: 10.nóv 2011, 20:06
frá Stebbi
Scarpa, Meindl og Arctic Trucks fengu veður af þessu og leystu málið í einum kaffitíma. Allir fá sér einn svona ,sameina þessi eldheitu áhugamál og allir eru vinir. Það er víst 44" útgáfa að koma fyrir jólin.

Image

Re: Skemmtileg frétt á DV

Posted: 11.nóv 2011, 15:09
frá Dodge
Allsstaðar þar sem ég hef komi á jeppanum þar sem göngugarpar eru á ferli þar hefur manni bara verið þakkað fyrir að þjappa fyrir þá gönguslóðir.

Ég veit ekki hvaða sérstaka ónæði göngufólk ætti að verða fyrir af völdum jeppa sem keyrir framhjá þeim.