Síða 1 af 1

Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 23.okt 2011, 01:19
frá Kölski
Hvað segiði um að hafa þetta aðrahelgi í hverjum mánuði. ?????
Og er þetta ekki enn á stefnuskránni.?

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 23.okt 2011, 02:22
frá jeepson
Jú við verðum að halda þessu gangandi. Ég hafði nú hugsað svona fyrsta sunnudag í hverjum mánuði þar sem að flestir eru nú búnir með launin sín á fyrstu vikuni. Enda alt hækkað uppúr öllu valdi eftir hrun. En mér er svosem sama hvaða dag þið hafið þetta. Enda var planið mitt bara að koma þessu að stað í fyrstu 2 skiptin svo ætti þetta bara að geta gengið áfram eftir það.

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 23.okt 2011, 12:54
frá flækingur
mér personulega finnst fyrsta helgi vera sniðugri þar sem peningar fara of hratt ú veskinu hjá mjög mörgum þó þeir séu ekki að gera neitt nema lifa af með allt í lágmarki. það er spurning um að hafa atkvæðagreyðslu um hvaða helgi hentar best. fyrir mig skiptir litlu máli hvaða helgi það..
með kveðju: Flækingur

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 23.okt 2011, 13:03
frá elfar94
sammála, alveg sama hvort helgin það er

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 23.okt 2011, 19:03
frá Kölski
Já var bara að pæla við erum allaveganna 3 sem erum alltaf að vinna fyrstu helgi í hverjum mánuðu en ef það eru fleiri sem hentar betur fyrsta helgin, þá verður það bara svoleiðis. ;-)

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 23.okt 2011, 20:31
frá flækingur
en svo er þetta nú líka soldið sem er hægt að gera ráð fyrir ð verði fast aðra helgi og miða allt við að komast. vonandi getur fólk skipulagt sig ennþá þó landið sé hrunið og allir blankir :-)

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 23.okt 2011, 22:14
frá jeepson
Sko planið mitt var að hafa þetta fyrsta sunnudag í hverjum mánuði. En ef að þið viljið frekar að þetta verði annars sunnudagur í hverjum mánuði þá höfum við það bara þannig. Þið ráðið þessu alveg sjálfir félagar og auðvitað væri flott að fá svör frá fleirum hvað þetta varðar. Þetta þarf auðvitað að vera þannig að þetti henti sem flestum. Annars er ekkert gaman af þessu. Ég fer allavega fljótlega að auglýsa næsta hitting þannig að það þyrfti að vera komið á hreint hvora helgina þetta eigi að vera.

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 23.okt 2011, 22:33
frá flækingur
mér henta allar helgar. en endilega komið með hvað hentar ykkur best svo það sé hægt að setja þetta á fasta helgi.. það er ekki gaman ef það er verið að hrinla með dagsettningar...

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 23.okt 2011, 22:48
frá jeepson
flækingur wrote:mér henta allar helgar. en endilega komið með hvað hentar ykkur best svo það sé hægt að setja þetta á fasta helgi.. það er ekki gaman ef það er verið að hrinla með dagsettningar...


Sammála.

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 24.okt 2011, 00:09
frá Brynjarp
fyrstu helgina. líst betur á það

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 24.okt 2011, 19:20
frá jeepson
Ég mun líklegast ekki koma þar sem að við erum sennilega að fara aftur vestur eftir helgina.

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 26.okt 2011, 21:13
frá hlífar
Og hver er staðan á þessu máli?

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 26.okt 2011, 21:19
frá jeepson
Góð spurning. Það væri allavega gott ef að menn gætu komið sér saman um hvort að þetta eigi að vera fyrstu helgi hvers mánaðar eða aðra helgi.

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 27.okt 2011, 01:46
frá arni hilux
ég segi fyrstu helgina!
kv árni

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 27.okt 2011, 07:33
frá Groddi
arni hilux wrote:ég segi fyrstu helgina!
kv árni


Sammála síðasta ræðumanni, fyrstu helgina.

Re: Jeppaspjalls hittingur.

Posted: 27.okt 2011, 07:35
frá Groddi
jeepson wrote:Góð spurning. Það væri allavega gott ef að menn gætu komið sér saman um hvort að þetta eigi að vera fyrstu helgi hvers mánaðar eða aðra helgi.



Ef þetta er bara eina helgi í mánuði þá verður mætingin töluvert betri heldur en ella