Síða 1 af 1

Ein spurning

Posted: 19.okt 2011, 20:29
frá Lonogdon
Sælir , er eitthvað sem bannar það að vera á hærri dekkjum að aftan en að framan? T.d. 35" að framan og 36" að aftan?

Bkv

Re: Ein spurning

Posted: 19.okt 2011, 20:39
frá hobo
Já á 4x4 bíl, þá kemur þvingun á drifrásina. Ekki vænlegt.

Re: Ein spurning

Posted: 19.okt 2011, 20:51
frá Lonogdon
En ef að hann er hafður í afturhjóladrifi?

Re: Ein spurning

Posted: 19.okt 2011, 20:55
frá Dreki
þá á það ekki að skipta máli

Re: Ein spurning

Posted: 19.okt 2011, 21:28
frá Einar
Það ætti svo sem ekki að vera mikið mál að gera þetta með mismunandi drifhlutföllum, þannig eru framdrifnar dráttarvélar settar upp.

Re: Ein spurning

Posted: 19.okt 2011, 21:37
frá ellisnorra
Einar wrote:Það ætti svo sem ekki að vera mikið mál að gera þetta með mismunandi drifhlutföllum, þannig eru framdrifnar dráttarvélar settar upp.


hahaha það væri nú fyndið að sjá, td 35" að framan og 38" að aftan :)

Re: Ein spurning

Posted: 19.okt 2011, 23:38
frá Sævar Örn
Voru menn ekki að æfa sig eitthvað með þetta í "gamladaga" til að láta framhjólin draga bílinn svo hann grípi betur beygjur ofl, höfðu hringstærri dekk að framan en aftan, m.a. í torfærunni og í snjójeppakeppnum á þarsíðasta áratug

Re: Ein spurning

Posted: 20.okt 2011, 21:47
frá Einar
Sævar Örn wrote:Voru menn ekki að æfa sig eitthvað með þetta í "gamladaga" til að láta framhjólin draga bílinn svo hann grípi betur beygjur ofl, höfðu hringstærri dekk að framan en aftan, m.a. í torfærunni og í snjójeppakeppnum á þarsíðasta áratug

Það er talið hafa góð áhrif ef framhjólin toga örlítið en slæm áhrif ef afturhjólin fara að ýta og menn hafa stundum klikkað á þessu og skilja síðan ekkert í að bílarnir láta illa á vegi. Sama hlutfall getur nefnilega verið til í mismunandi útfæslum t.d. "4.09:1" , "4.10:1" , "4.11:1". Lítur út fyrir að vera nánast það sama en munurinn er nægur til að það myndast örlítil þvingun og ef hún er í ranga átt lætur bíllinn verr á vegi.

Re: Ein spurning

Posted: 20.okt 2011, 22:22
frá Freyr
Ég er með 4,56 drif að framan og 4,57 að aftan.