Síða 1 af 1

Festa pallhús

Posted: 16.okt 2011, 21:02
frá rambo
Hvernig eru menn að festa pallhús á skúffuna hjá sér? Eru menn að setja einhvern borða ofan á skúffuna og húsið svo ofan á og kítta að utan?Vill losna við vætu inn í húsið.
Bk Svavar

Re: Festa pallhús

Posted: 16.okt 2011, 21:32
frá Óskar - Einfari
Ég notaði eitthvað wurth gluggakítti. Það þéttir aðalega held ég, er ekki beinlínis lím enda þarf ekki að líma húsið þar sem festingarnar sjá um að halda því á. Á mínum gamla Hilux setti ég einhvern þéttisvamp sem ég keypti í húsasmiðjunni eða byko. Þetta er svona svartur þunnur svampur á rúllu sem þennst út þegar hann er tekin í sundur. Fannst hann ekkert betri eða verri en eitthvað annað.

Re: Festa pallhús

Posted: 16.okt 2011, 22:26
frá KÁRIMAGG
Festingarnar fara eftir gerðinni á húsinu þeir geta svarað þér með það hjá arctic trucks hvernig festingar þú þarft en ég myndi ekki kítta það uppá að geta kippt því af ef á þarf að halda

Re: Festa pallhús

Posted: 16.okt 2011, 22:30
frá rambo
Ég er með húsið á bílnum og það er með góðum festingum. Ætla bara að taka það af og setja það aftur á pallinn og þétta það betur á pallinn.

Re: Festa pallhús

Posted: 17.okt 2011, 21:14
frá Dreki
bílasmiðurinn er með þéttikanta fyrir þig ég er með þetta frá þeim og virkar vel það eru allar þyktir og breiddir

Kv.Smári