Síða 1 af 1
eðlilegt verð á 38"
Posted: 13.okt 2011, 19:06
frá Dreki
Hvað finnst mönnum eðlilegt að borga fyrir 38"x15,5x15 mudder 4 ára gamlan og þar af 2 ár ónotaður ekinn innan við 5000km
Kv.Smári
Re: eðlilegt verð á 38"
Posted: 13.okt 2011, 19:47
frá JonHrafn
200-250 Þau hafa örugglega kostað það ný á sínum tíma.
Re: eðlilegt verð á 38"
Posted: 13.okt 2011, 20:16
frá Dreki
það er nefnilega málið að þetta er líka orðið yfirborgað vegna þess að þetta er svo sjaldgæft orðið þá meina ég í topp standi
en þetta með hvað hlutir kostuðu og hvað þeir kosta í dag er líka afstætt
Re: eðlilegt verð á 38"
Posted: 13.okt 2011, 20:27
frá Stebbi
þetta fer á allavegna 350 þús á felgum. Mudder fæst ekki nýr í dag.
Re: eðlilegt verð á 38"
Posted: 14.okt 2011, 00:08
frá jeepson
Minnir að mudderinn hafi verið hættur fyrir 3 árum síðan. Eg þegar ég kannaði verð á mudder 2006 þá var gangurinn á um 130þús nýr. 44" DC voru á um 54þús stykkið (hef það eftir kunningja sem var að pæla þá í 44" undir econoline sem að hann átti) En menn virðast hreinlega liggja á gulli ef að þeir eiga mudder eða groundhawk sem eru mjög lítið slitin.
Re: eðlilegt verð á 38"
Posted: 14.okt 2011, 08:24
frá Tómas Þröstur
2008 kostaði gangurinn 220 þús. Það voru síðustu eintökin á því verði sem komu til landsins. Hvort þau koma aftur er erfitt að vita. Einn galli er að við kaupa nær óslitin dekk í dag er að ef eitt dekk eyðileggst þá má næstum segja að þau séu öll ónýt því mjög erfitt væri að fá nýlegt stakt dekk.
Re: eðlilegt verð á 38"
Posted: 14.okt 2011, 09:06
frá JoiVidd
mér finnst 350 full gróft en um 300-320þ. kallinn er nokkuð nær verðinu.. þú færð NÝ 38" dekk á rétt innan við 400þ. útúr búð núna á fullu verði og þá er kanski hægt að sníkja einhver afslátt.. svo 350 fyrir eldgamlar dekkjatuðrur er aðeins í hærri kantinum að mínu mati allavega.. en hvað er eftir í mm?
Re: eðlilegt verð á 38"
Posted: 14.okt 2011, 12:32
frá JonHrafn
Aldur er nú ekki besti vinur dekkjana
Re: eðlilegt verð á 38"
Posted: 14.okt 2011, 13:32
frá JoiVidd
ég get tekið þetta hjá þér á einhvern 80-100 kall til að losa þig við þetta;) hehe
Re: eðlilegt verð á 38"
Posted: 14.okt 2011, 17:27
frá Stebbi
Ef þú færð ný 38" dekk á 400 þús þá er ekki ósennilegt að fá 350 fyrir mjög lítið slitin dekk á felgum, breiðar 15" felgur kosta aldrei minna en 40 þús ef þær eiga að vera nothæfar. Svo er annanr vinkill á þessu og hann er það að það standast ekki öll dekk samanburðinn við Mudder eða GH, það hlýtur að vera eitthvers virði í endursölu og sá hluti sem heldur uppi verðinu.
Re: eðlilegt verð á 38"
Posted: 14.okt 2011, 17:41
frá Kalli
Ég keypti 2 st. 3 ára Mödder mjög góða í sumar á 40.000 kr
kv. Kalli
Re: eðlilegt verð á 38"
Posted: 14.okt 2011, 19:02
frá jeepson
Það er oft hægt að detta niður á þetta á fínu verði. En mér fynst oft menn verðleggja þetta full mikið. En svo er bara annað að menn eru oft tilbúnir til að kaupa notuð dekk á háu verði þannig að menn leyfa sér auðvitað að setja hátt verð á þetta. En svo er það líka bara það að það hækkar alt í kreppuni.
Re: eðlilegt verð á 38"
Posted: 14.okt 2011, 22:29
frá JoiVidd
Stebbi wrote:Ef þú færð ný 38" dekk á 400 þús þá er ekki ósennilegt að fá 350 fyrir mjög lítið slitin dekk á felgum, breiðar 15" felgur kosta aldrei minna en 40 þús ef þær eiga að vera nothæfar. Svo er annanr vinkill á þessu og hann er það að það standast ekki öll dekk samanburðinn við Mudder eða GH, það hlýtur að vera eitthvers virði í endursölu og sá hluti sem heldur uppi verðinu.
málið er að með smá lægni í viðskiptum og jafnvel einhvern f4x4 afslátt eða eitthvað slíkt.. ég er td. með góðan afslátt í gegnum vinnuna á ákveðnum stað og get ég fengið nýjan 38" gang ekki langt frá 350þ. kalli.. en auðvita er til einhver sérviska í einhverjum kölllum að mudder og gh eru best og eitthvað en ég persónulega held að það sé bara því að það er ekki hægt að fá þau lengur.. hehe. Þau dekk sem fást í dag eru alls ekki mikið verri en mudder og gh, þótt að mudderinn eru jú mjög fín dekk og allt það.. en þetta er voðalega persónubundið hvað er betra en annað og misjafnt eftir bílum og í hverju þú ert að keyra.. en já, ég er hættur að tuða.. mér bara finnst ekki rétt að vera að selja eitthvað eldgamalt og miða verðið við nýtt og sérstaklega þegar þessi gangur kostaði um 200þ. NÝR á sínum tíma..
ps. þá er mín reynsla á gh dekkjum ekki góð, ekki góð dekk í mínum augum en svo aftur jón jónson hérna útí bæ heví sáttur með þau og þetta eru bestu dekk í heimi í hans huga..
Re: eðlilegt verð á 38"
Posted: 14.okt 2011, 23:55
frá JonHrafn
JoiVidd wrote:Stebbi wrote:Ef þú færð ný 38" dekk á 400 þús þá er ekki ósennilegt að fá 350 fyrir mjög lítið slitin dekk á felgum, breiðar 15" felgur kosta aldrei minna en 40 þús ef þær eiga að vera nothæfar. Svo er annanr vinkill á þessu og hann er það að það standast ekki öll dekk samanburðinn við Mudder eða GH, það hlýtur að vera eitthvers virði í endursölu og sá hluti sem heldur uppi verðinu.
málið er að með smá lægni í viðskiptum og jafnvel einhvern f4x4 afslátt eða eitthvað slíkt.. ég er td. með góðan afslátt í gegnum vinnuna á ákveðnum stað og get ég fengið nýjan 38" gang ekki langt frá 350þ. kalli.. en auðvita er til einhver sérviska í einhverjum kölllum að mudder og gh eru best og eitthvað en ég persónulega held að það sé bara því að það er ekki hægt að fá þau lengur.. hehe. Þau dekk sem fást í dag eru alls ekki mikið verri en mudder og gh, þótt að mudderinn eru jú mjög fín dekk og allt það.. en þetta er voðalega persónubundið hvað er betra en annað og misjafnt eftir bílum og í hverju þú ert að keyra.. en já, ég er hættur að tuða.. mér bara finnst ekki rétt að vera að selja eitthvað eldgamalt og miða verðið við nýtt og sérstaklega þegar þessi gangur kostaði um 200þ. NÝR á sínum tíma..
ps. þá er mín reynsla á gh dekkjum ekki góð, ekki góð dekk í mínum augum en svo aftur jón jónson hérna útí bæ heví sáttur með þau og þetta eru bestu dekk í heimi í hans huga..
Finnst lítið varið í GH en gumbo monster mödderinn var virkilega góður.