Hækka skatta á bensín

User avatar

Höfundur þráðar
ellisnorra
Póststjóri
Innlegg: 2809
Skráður: 06.feb 2010, 10:43
Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
Bíltegund: Patrol
Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf

Hækka skatta á bensín

Postfrá ellisnorra » 02.okt 2011, 07:20

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/ ... _a_bensin/


Djövulsins snillingar, nú ætlar þessi blessaða vinstri stjórn okkar að auka enn álögur á okkur bíleigendur og auðvitað förum við jeppaeigendur verr útúr því heldur en aðrir þar sem okkar bílar eru þyngri og eyða meira en yaris púddurnar.

Ekki kaus ég þetta, enda kaus ég ekki þessa stjórn.


http://www.jeppafelgur.is/

User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2490
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: Hækka skatta á bensín

Postfrá hobo » 02.okt 2011, 09:05

Nú er verið að kreista kúnna fyrir meiri mjólk..


olihelga
Innlegg: 92
Skráður: 15.feb 2010, 12:46
Fullt nafn: Ólafur Helgason

Re: Hækka skatta á bensín

Postfrá olihelga » 02.okt 2011, 09:45

Þetta á sér ósköp eðlilega skýringu, eftir að álögur voru hækkaðar síðast þá dóst sala á elsneyti heldur saman en áætlanir gerðu ráð fyrir söluaukningu til þess að láta dæmið ganga upp og fá það í kassann sem áætlað var er náttúrlega langeðlilegast að hækka bara álögurnar meira til að vega upp á móti þessari sölutregðu :)

Kv Óli
Sent úr Siemens brauðrist


arntor
Innlegg: 176
Skráður: 05.okt 2010, 21:26
Fullt nafn: Arntor Sverrir Sigurdarson

Re: Hækka skatta á bensín

Postfrá arntor » 02.okt 2011, 10:05

tad hlýtur ad enda á tví ad sé kúin kreist of mikid tá fái hún júgurbólgu og haetti ad selja.


Ofsi
Innlegg: 278
Skráður: 31.jan 2010, 22:32
Fullt nafn: Jón Garðar Snæland

Re: Hækka skatta á bensín

Postfrá Ofsi » 02.okt 2011, 10:13

Þetta er nú meiri steypan hjá þér kæri Ólafur Helgasson. Stendur ekki stafur yfir staf hjá þér í þessari röksemdarfærslu. Það er klárt einsog sólin kemur upp á morgun að frekari hækkanir verða til þess eins að enn frekar dregur í bifreiðarnotkun. Þjóðin er lögnu kominn að þolmörkun og ekkert afgangs í rúnterí um borg og bæ. Það eina sem esb rassasleikjunum og græna lopapeisupakkinu dettur í hug er samdráttur hjá almenningi, því ekki má skera baun hjá lopapeisupakkinu. Þegar allt er komið klessu er einmitt ráð að snúa við blaðinu og reyna að hrista af sér slenið og bretta upp ermar. Þetta var gert í bandaríkjunum eftir kreppuna miklu. Nær væri að græna slikjan og esb sleikjurnar lækkuðu álögur á eldsneyti. Og fengju með því almenning til þess að aka meira og auka bjartsýni svo þjóðin hætti að halda að sér höndum í uppbyggingu og framkvæmdargleði.


olihelga
Innlegg: 92
Skráður: 15.feb 2010, 12:46
Fullt nafn: Ólafur Helgason

Re: Hækka skatta á bensín

Postfrá olihelga » 02.okt 2011, 11:09

Ofsi, eins og talað útúr mínum munni. Ég vona að þú missir ekki svefn vegna kaldhæðninnar í þessu hjá mér :)

Kv, Óli
Síðast breytt af olihelga þann 02.okt 2011, 11:10, breytt 1 sinni samtals.
Sent úr Siemens brauðrist

User avatar

Polarbear
Póststjóri
Innlegg: 874
Skráður: 31.jan 2010, 23:15
Fullt nafn: Lárus Rafn Halldórsson
Bíltegund: Toyota

Re: Hækka skatta á bensín

Postfrá Polarbear » 02.okt 2011, 11:09

ofsi... það er mjög sterk kaldhæðnislykt af færslu óla... en þetta er það eina sem rússarnir...erm, afsakið, Vinstri grænir, geta hugsað upp. Skattur og skattaskattur og varaskattaskattur er það eina sem er á þeirra radar. Maður getur bara óskað sér þess að ríkisstjórnin lifi ekki af allt kjörtímabilið svo við getum fengið einhverja aðra vitleysinga í stjórn til að rústa restinni.


olihelga
Innlegg: 92
Skráður: 15.feb 2010, 12:46
Fullt nafn: Ólafur Helgason

Re: Hækka skatta á bensín

Postfrá olihelga » 02.okt 2011, 11:13

Ég er nú reyndar alveg hissa hvað hún hangir saman, eftir kosningar var ég alveg pollrólegur yfir vinstri stjórn því ég átti von á kosningum aftur fyrir jól það árið, það kemur alltaf meir og meir á óvart að heyra ekki stjórnarslit í morgunfréttunum.

Kv, Óli
Sent úr Siemens brauðrist


Ofsi
Innlegg: 278
Skráður: 31.jan 2010, 22:32
Fullt nafn: Jón Garðar Snæland

Re: Hækka skatta á bensín

Postfrá Ofsi » 02.okt 2011, 11:27

Gott að við erum allir sammála um að þessar afturhalds og koddakæfandi aðgerðir eru þjóðinni ekki til framdráttar


Guðjón S
Innlegg: 76
Skráður: 20.júl 2010, 16:43
Fullt nafn: Guðjón Smári Guðjónsson

Re: Hækka skatta á bensín

Postfrá Guðjón S » 02.okt 2011, 12:40

Þú ert eftlaust að meina þann 3.okt er það ekki?


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 44 gestir