Síða 1 af 1
					
				Patrol að brenna
				Posted: 19.sep 2011, 22:40
				frá Svenni30
				
			 
			
					
				Re: Patrol að brenna
				Posted: 19.sep 2011, 22:57
				frá elfar94
				ég held ég sé að fara með rétt mál að þetta sé patrol-inn sem kom í fréttum um daginn að hafi kveiknað í, hann var með 3 aukatönkum eða eitthvað álíka, bílstjórinn var einn í bílnum og náði ekki einu sinni að grípa veskið sitt áður en bíllin varð alelda.
			 
			
					
				Re: Patrol að brenna
				Posted: 20.sep 2011, 00:14
				frá -Hjalti-
				http://epaper.visir.is/media/2011080500 ... ne/1_8.pdf Eldur kviknaði í jeppa sunnan 
við Veiðileysu, skammt frá Djúpavík eftir hádegi í gær. Lögreglumaður, slökkviliðsbíll og tveir 
sjúkrabílar komu á staðinn og var 
veginum lokað á meðan verið var 
að ráða niðurlögum eldsins. Ökumaður slapp ómeiddur. 
„Þetta var stór bíll með þremur 
bensíntönkum og það kviknaði 
bara í honum. Það kom reykur úr 
mælaborðinu og svo sprakk bíllinn einfaldlega. Ökumaðurinn 
náði rétt svo að sleppa út úr bílnum. Hann náði ekki veskinu sínu 
með eða neinu. Bíllinn var alelda,“ 
sagði sjónarvottu
 
			 
			
					
				Re: Patrol að brenna
				Posted: 20.sep 2011, 14:18
				frá Hjörvar Orri
				Sælir, ég tók ekki eftir því að þetta væri komið inn hérna. Það er aðeins verið að fara með rangt mál. Bíllinn var stútfullur að diesel olíu, og það var ekkert sem sprakk. Þetta átti sér stað við spena í Árneshrepp. Strákurinn var með bílinn í láni hjá föður sínum, og þessi bíll var vel breyttur, og var notaður til að keyra með lækni í sveitina á veturnar, þegar það er ekki búið að ryðja. En nú spyr ég þola þessar vélar ekki meira en svona 100 þús k.m. Ég hef lengi vel haft augun opin fyrir svona bílum, og lýsingarnar á patrolum til sölu eru oft svona, t.d. bíll ekin 150 þús, en 20 þús. á vél!!
			 
			
					
				Re: Patrol að brenna
				Posted: 20.sep 2011, 15:52
				frá olei
				Hvað olli íkveikjunni?
			 
			
					
				Re: Patrol að brenna
				Posted: 20.sep 2011, 18:07
				frá Stebbi
				Reykur undan mælaborði bendir til þess að eitthvað í rafkerfinu hafi kveikt í
			 
			
					
				Re: Patrol að brenna
				Posted: 20.sep 2011, 20:25
				frá Einar
				Hroðalegt að þurfa að horfa á bílinn sinn fuðra svona upp, ótrúlega mikill eldsmatur í svona farartæki sem manni finnst vera að mestu úr stáli. ég hef tvisvar tekið þátt í að slökkva eld í bílum, í annað skiptið í jeppa inn á verkstæði og hitt skiptið í 50 manna rútu fullri af krökkum uppi á Öxnadalsheiði og ef menn ná ekki tökum á eldinum strax í upphafi þá þá er farartækið farið.