Tjaldvagnsgrey.


Höfundur þráðar
trooper
Innlegg: 114
Skráður: 29.mar 2010, 20:12
Fullt nafn: Hjalti Steinþórsson

Tjaldvagnsgrey.

Postfrá trooper » 19.sep 2011, 21:36

Jæja sælir.
Ástæða þess að ég stofna nýjann þráð er sá að í sumar áskotnaðist mér forláta tjaldvagnsgarmur sem heitir að mig minnir camptourist. Eldgamall þýskur jálkur 1981 að mig minnir en ekkert nema stærðin þegar honum er tjaldað. Það er nú einmitt þess vegna sem ég held ég ætli að gera eitthvað við greyjið. Nú væri fínt að ef einhver þekkir til þessa vagna tjái sig í riti og helst til að draga úr þessu annars tímafreka verkefni sem ég er að byrja á. ;) Að sjálfsögðu er tjaldið aðeins myglað og rifið eins og gengur og gerist en mér skilst á saumakonum að það sé lítið vandamál að sauma þetta saman og enn minna vandamál að láta þvottahús þvo mygluna úr. Svo skuli ég hengja tjaldið á blautt og spreyja einhverjum fjanda yfir sem ég man ekki hvað var en tilgangurinn var að vatnsverja garminn.
Nú að vagninum, ég tel mig þurfa að skipta bæði um topp og botn í vagninum sjálfum. Hvað hafa menn verið að setja? Ég finn til ógleði yfir dýrum vatnsvörðum krossvið en hef ekki fattað upp á einhverju ódýrara enn.
Eins væri nú fínt ef einhver ætti mynd af þessu samsettu, væri snilld að commenta á þetta og jafnvel að deila myndinni.;)
Ef einhver áhugi reynist gæti ég jafnvel smellt mynd af gramsinu postað henni.
en þetta með botnin og toppinn.. endilega tæmið úr visku og reynslubrunni ykkar í þessum efnum.
kv. Hjalti


Santa Fe
35" Patrol - Seldur
35" Trooper - Seldur
35" CrewCab - Seldur

User avatar

Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

Re: Tjaldvagnsgrey.

Postfrá Freyr » 19.sep 2011, 23:51

Múrbúðin selur vatnsvarinn krossvið. Keypti krossvið í jeppakerru og borgaði um 18.000 fyrir tvær plötur hjá þeim en hefðu kostað tæp 70.000 hjá Byko og Húsasmiðjunni.


RúnarA
Innlegg: 33
Skráður: 27.apr 2010, 21:43
Fullt nafn: Rúnar Arason
Bíltegund: 4Runner diesel

Re: Tjaldvagnsgrey.

Postfrá RúnarA » 20.sep 2011, 20:11

Bara googla "camptourist" fullt af myndum, á youtube eru gamlar DDR auglýsingar og leiðbeiningar um tjöldun.
Gangi þér vel með vagninn.
Rúnar


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur