Síða 1 af 1

Miðstöð og demparar

Posted: 09.sep 2011, 20:44
frá ThOl
Sælir snillingar. Mig vantar ráð. Í fyrsta lagi þá fer miðstöðin aðeins í gang á hæstu stillingu (4) en er alveg dauð á 1,2 og 3. Hver er algengasta orsök svona vandræða?

Svo þarf að skipta um dempara að framan á Patrolnum mínum, árg ´99. Hann er breyttur fyrir 35". Þarf ég ekki lengri en orginal dempara undir hann? Hvað eiga þeir að vera langir?

Kv
Þorgeir

Re: Miðstöð og demparar

Posted: 09.sep 2011, 21:15
frá ellisnorra
Það er viðnám í miðstöðvarstokknum, yfirleitt undir hanskahólfinu. Einfalt plögg yfirleitt með 3-4 pólum. Sumir redda sér með því að snúa saman þráðinn sem brunnið hefur í sundur en það er bara skammtímaredding, yfirleitt fæst þetta í umboði eða bílabúðum fyrir (ó)hóflegt gjald.

Re: Miðstöð og demparar

Posted: 09.sep 2011, 21:15
frá jongunnar
Í sambandi við miðstöðina þá er mjög sennilega farinn mótstaðan fyrir mótorinn.

Re: Miðstöð og demparar

Posted: 09.sep 2011, 21:16
frá arnisam
Yfirleitt er það mótstaðan í rofanum fyrir miðstöðina sem bilar svona.

Re: Miðstöð og demparar

Posted: 09.sep 2011, 21:21
frá ThOl
Kærar þakkir, fer í að finna þessa mótstöðu. Nú vantar bara upplýsingar frá Patrol mönnum um dempara undir 35" breytta bíla.

Kv
ÞÓ

Re: Miðstöð og demparar

Posted: 09.sep 2011, 21:28
frá jongunnar
Það er ekkert samasem merki á milli þess að vera á 35" og með lengri dempara ef að bíllinn er boddýlyftur á breytist þetta ekkert og ef honum er lyft á gormum þá eru turnarnir sem depararnir festast að ofan yfirleitt lækkaðir líka...
Skilst þetta kaðrak hjá mér???

Re: Miðstöð og demparar

Posted: 09.sep 2011, 21:39
frá ThOl
Takk fyrir þetta Jón Gunnar, þá er að fara í verðsamanburð og reyna að finna eitthvað sæmilegt undir gripinn. Hann er nánast bara notaður á sumrin og mér finnst mestu máli skipta að fá mjúka dempara sem fara vel með mann á þessum yndirlegu slóðum á hálendinu.

Þorgeir

Re: Miðstöð og demparar

Posted: 09.sep 2011, 21:47
frá jeepcj7
Þegar verið er að spá í dempara í breyttan bíl er ekkert vit annað en að taka demparann sem fyrir er og mæla hann til að fá passandi í staðinn að því gefnu að sá dempari sé í réttri lengd,það er allur gangur á hvort og hvert menn færa dempara festingar við breytingar á bílum.

Re: Miðstöð og demparar

Posted: 09.sep 2011, 21:58
frá ThOl
Takk Hrólfur, ég fer að ráðum þínum og ríf draslið úr og skelli því að borðið í búðinni og bið um sömu lengd!

Kv
ÞÓ