Síða 1 af 1

Vantar í hjólaskálar

Posted: 01.sep 2011, 16:04
frá hobo
Man ekki hvort ég var búinn að spyrja að þessu áður, en mig vantar þunnt plast eða gúmmí til að klæða inn í hjólaskálar. Hvar fæ ég þetta ..ódýrt?

Re: Vantar í hjólaskálar

Posted: 01.sep 2011, 19:14
frá Oskar K
þeir eiga þetta í Poulsen, getur vælt út einhvern afslátt hjá honum frikka hérna :P

Re: Vantar í hjólaskálar

Posted: 01.sep 2011, 22:04
frá Freyr
Málmtækni, minnir að ég hafi borgað 2.xxx krónur fyrir rúlluna. Þeir voru mikið ódýrari en Plastviðgerðir Grétars

Re: Vantar í hjólaskálar

Posted: 01.sep 2011, 23:01
frá Valdi 27
Bílasmiðurinn á Höfðanum er með helling af þessu, veit svosem ekkert um verðin frá honum en hann á að vera með helling af allskyns gúmmelaði fyrir þig.

Re: Vantar í hjólaskálar

Posted: 02.sep 2011, 08:44
frá AgnarBen
Sammála Frey, Málmtækni selur þunnar plastplötur (til í tveimur þykktum, ég notaði þynnri) sem eru algjör snilld, brotna ekki og auðvelt að beygja til og frá, hægt að forma líka með hitara. Bara festa þær með álvinklum eða boddýskrúfum. Rúllan kostar rúmar 3 þús.kr og hún dugar undir fjóra brettakanta.

Re: Vantar í hjólaskálar

Posted: 02.sep 2011, 16:51
frá hobo
Búinn að skella mér á plastið frá málmtækni.
2 fm á 3800 kr með afslætti, lítur vel út.