Síða 1 af 1
Lög um stýrisbúnað?
Posted: 30.aug 2011, 10:21
frá elfar94
í bók sem ég er að lesa fyrir próf í áfanga sem heitir Stýri, fjöðrun kemur fram að í lögum um stýrisbúnað standi '' Ef breytingar á að gera á stýrisbúnað skal liggja fyrir samþykki framleiðanda bifreiðarinnar og umferðarstofu'' er ég að skilja það rétt að ef ég ætla að breyta löduni minni þá þarf ég að fá samþykki rússana til þess?
Re: Lög um stýrisbúnað?
Posted: 30.aug 2011, 11:55
frá jeepson
Það samþykki fæst með einni vodkaflösku :)
Re: Lög um stýrisbúnað?
Posted: 30.aug 2011, 12:56
frá Izan
Sæll
En hvað er verið að tala um þegar talað er um breytingar á stýrisgangi? Hversu mikið þarftu að gera til að það teljist breytingar?
Ég veit til þess að skoðunarstöð ætlaði ekki að hleypa bíl í gegn sem var búið að skipta út millibilsstöng fyrir aðra eins með gengjum í báða enda. Þeir töldu það of mikla breytingu á meðan önnur stöð kallar þetta viðhald.
Máttu taka búnað sem er viðurkenndur í öðrum bíl og nota í annann? Myndi það kalla á samþykkt eða er það bara viðhald? Þetta er það sem menn eru að gera dagsdaglega.
Ég held að þetta reglugerðafargan er að ganga frá íslenskum iðnaði, halda því fram að það sé ekkert nógu gott nema það sé flutt inn frá útlöndum.
Re: Lög um stýrisbúnað?
Posted: 30.aug 2011, 16:29
frá Sævar Örn
Hæhæ, það er túlkað sem samþykki framleiðanda ef að bíllinn stenst hjólastöðuvottorð á vottuðu bílaverkstæði.
Þarft ekkert að fara að æfa þig í rússneskunni, ertu í Borgarholtsskóla í Bifvélavirkjun kannski? Skemmtilegt nám er nýlega búinn með það, mjög auðvelt ef áhuginn er fyrir hendi.