Síða 1 af 1

ískur í hurð

Posted: 22.aug 2011, 10:46
frá afc
Hvaða efni er best að nota til þess að losna við ískur í hurð ?
Er að verða brjálaður á þessari sinfóníu sem hljómar um allt hverfið þegar ég opna bílinn :o

Re: ískur í hurð

Posted: 22.aug 2011, 11:06
frá Svenni30

Re: ískur í hurð

Posted: 22.aug 2011, 11:34
frá afc
Takk fyrir þetta, prufa þetta :)

Re: ískur í hurð

Posted: 22.aug 2011, 22:31
frá Islandsol
Virkar ekki WD 40 á allt? Er alltaf með það í skottinu :)

Re: ískur í hurð

Posted: 22.aug 2011, 23:26
frá Kalli
Islandsol wrote:Virkar ekki WD 40 á allt? Er alltaf með það í skottinu :)


Það smyr ekki.

Re: ískur í hurð

Posted: 22.aug 2011, 23:28
frá Stebbi
WD-40 þrífur aftur á móti mjög vel þá hluti sem á síðan að smyrja með olíu. Svo er það mjög gott við andremu, þekki einn sem prufaði það og varð ekki meint af.

Re: ískur í hurð

Posted: 23.aug 2011, 00:11
frá AgnarBen
Stebbi wrote:WD-40 þrífur aftur á móti mjög vel þá hluti sem á síðan að smyrja með olíu. Svo er það mjög gott við andremu, þekki einn sem prufaði það og varð ekki meint af.


Sár sem hafa verið meðhöndluð með WD40 gróa líka mun hraðar .... þetta er vísindalega sannað ;-)

Re: ískur í hurð

Posted: 23.aug 2011, 08:14
frá elfar94
WD-40, það klikkar ekki

Re: ískur í hurð

Posted: 23.aug 2011, 09:42
frá HaffiTopp
Stebbi wrote:WD-40 þrífur aftur á móti mjög vel þá hluti sem á síðan að smyrja með olíu. Svo er það mjög gott við andremu, þekki einn sem prufaði það og varð ekki meint af.

Reyndar ágætis lykt af þessu frá Wurth sem Svenni30 bendir á, en svo er þetta líka snilld á hurðalamir: https://verslun.wurth.is/efnavara/smurefni/2-187-hhs-2000.html
Kannski soldið dýrara en líka meira magn.
Kv. Haffi
PS. Ég hélt að allar smurstöðvar smyrðu í lamir á bílum þegar menn kæmu með þá í smurningu ;)

Re: ískur í hurð

Posted: 23.aug 2011, 12:25
frá Freyr
WD 40 er svosem ágætis ryðolía til að losa upp fasta hluti og um leið hverfur jú ískur t.d. í lömum en það endist mjög stutt því WD 40 er ekki alvöru smurefni. Mun betra er að nota alvöru smurspray eins og t.d. Fin Lube sem er teflon feiti sem Kemi selur.

Freyr

Re: ískur í hurð

Posted: 23.aug 2011, 19:08
frá birgthor
Prolong smurefnið virkar best, það er það sem ég nota á allt.
Kostar reyndar sitt.

Re: ískur í hurð

Posted: 23.aug 2011, 23:17
frá stjanib
Get líka mælt með Fin lube.. gæða efni þar á ferð en það kostar sitt líka.

Re: ískur í hurð

Posted: 23.aug 2011, 23:59
frá Freyr
birgthor wrote:Prolong smurefnið virkar best, það er það sem ég nota á allt.
Kostar reyndar sitt.


Get tekið undir það að prolong sé líka mjög gott. Fyrst við erum að tala um þessi efni á annað borð langar mig að benda ykkur á eitt. Kemi (fer að hljóma grunsamlega en nei, ég er ekki á prósentum þar...:-) selur ryðolíu sem heitir Meg A Loose og hún virkar ROSALEGA vel! FInnst nú oftast sáralítill munur á þessum efnum eins og t.d. ryðolíum en þessi er sú lang öflugasta sem ég hef prófað, vildi bara deila þessu með ykkur.

Kv. Freyr

Re: ískur í hurð

Posted: 24.aug 2011, 10:08
frá Stebbi
Image

Ég komst í gamlan brúsa af þessu stöffi hjá tengdapabba sem er flugvirki og ég er nokkuð viss um að ég fann kraftaverk í brúsa. Ég hef aldrei séð olíu leita uppi glufur og gengjur eins og þetta.

Re: ískur í hurð

Posted: 24.aug 2011, 12:35
frá Haffi
ProLong SP100, eina vitið.
http://www.prolong.is/?page_id=157


Smyr og losar allt sem á að hreyfast
Leysir ryð
Stöðvar ískur
Minnkar slit
Algjör snilld á rafkerfi
Vinnur gegn raka og tæringu
Gott á keðjur og lása
Eykur líftíma slithluta
Sparar tíma og peninga

Re: ískur í hurð

Posted: 24.aug 2011, 19:30
frá arni87
Ég nota Kroil þó nokkuð, en það er best að láta það vinna aðeins áður en maður tekur á boltanum, svipað og WD 40.

En ég nota einnig ProLong SP100 talsvert og eru þetta bestu smurefnin að mínu mati.

Re: ískur í hurð

Posted: 25.aug 2011, 00:07
frá thengillo
Teflon smurefnið FIn Lube/Fin Super frá Kemi ehf. Er eina vitið. Eitt besta smurefni sem völ er á. Þurrsmurning, safnar ekki í sig ryki eða skít. Algert undraefni.
http://kemi.is/?item=173&v=item