Síða 1 af 1
Installation kit
Posted: 06.aug 2011, 22:39
frá hobo
Re: Installation kit
Posted: 07.aug 2011, 07:46
frá Oskar K
er ekki langbest og ódýrast að taka þetta einmitt í gegnum ebay ? ef það lyggur á þessu geta flestir sent með express pósti
Re: Installation kit
Posted: 07.aug 2011, 11:08
frá hobo
Mér sýnist þetta ekki vera til á ebay.
Menn mættu gjarnan benda mér á staði á netinu þar sem ég get pantað þetta.
En ég væri líka til í að gera verðsamanburð á þessu hér heima.
Legurnar ættu að fást í Landvélum eða Fálkanum en það er spurning með stilliskífurnar á pinjón og krumpuhólk/fastan hólk, pakkdós og þ.h.
Hvar fæst þetta á landinu?
Re: Installation kit
Posted: 07.aug 2011, 11:30
frá Stjáni Blái
Eiga þeir þetta ekki til í Fjallabílum ?
annars er bara að kaupa hér -
www.summitracing.comkv.
Re: Installation kit
Posted: 07.aug 2011, 11:54
frá Sævar Örn
http://www.summitracing.com/parts/SAG-35-2041/?rtype=104 legur, pakkdós, stilliskífur, ró á pinnjón,krumpholkur, innstilliblámi og pensill
vel úti látið sett og ekki dýrt
Re: Installation kit
Posted: 07.aug 2011, 12:16
frá Freyr
Stál og stansar og AT eiga þetta pottþétt, ábyggilega líka Jeppasmiðjan og jafnvel Bílabúð Benna og Breytir.
Re: Installation kit
Posted: 07.aug 2011, 19:03
frá hobo
Takk fyrir strákar, ég prófa þetta.
Re: Installation kit
Posted: 07.aug 2011, 21:14
frá JonHrafn
Var að skoða þetta fyrir nokkru, fékk ekki betur séð en það væri bara ódýrast að taka þetta í Toyota Kópavogi með f4x4 afslættinum.
Re: Installation kit
Posted: 07.aug 2011, 21:29
frá hobo
JonHrafn wrote:Var að skoða þetta fyrir nokkru, fékk ekki betur séð en það væri bara ódýrast að taka þetta í Toyota Kópavogi með f4x4 afslættinum.
Já ég hef lært það að gleyma ekki að tékka á umboðum varðandi verð, þeir eru stundum með besta verðið. Ekki oft, en kannski í þessu tilfelli eins og þú segir.
Toyota umboðið í það minnsta býður líka uppá "aftermarket" varahluti til að vera með í samkeppninni um viðskiptin.
Var þetta orginal sem þú keyptir?
Re: Installation kit
Posted: 07.aug 2011, 22:20
frá JonHrafn
Er ekki ennþá búinn að versla mér :) Fer að skella mér í það samt svo bíllinn verði nú ferðafær þegar það byrjar að snjóa.