Síða 1 af 1

Gosið er hafið

Posted: 21.mar 2010, 08:46
frá gislisveri
Jæja, þá brennur jörð á Fimmvörðuhálsi. Góð tilbreyting að þetta fylli fréttatímana.
Er einhver hér sem ætlar að renna austur fyrir að skoða?
Kv.
Gísli

Re: Gosið er hafið

Posted: 21.mar 2010, 10:54
frá jeepson
Ég frétti það að lögreglan hafi lokað veginum frá Selfossi til austurs í nótt þar sem að fólk hafi rokið af stað til að sjá gosið. Einhverjir hafi meir að segja ætlað að labba eitthvað í áttina að gos staðnum. Sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Re: Gosið er hafið

Posted: 21.mar 2010, 10:57
frá joias
Það væri nú gaman að fá að sjá þetta með berum augum

Re: Gosið er hafið

Posted: 21.mar 2010, 11:26
frá jeepson
haha já það væri nú aldeilis gaman. Nú bölva ég því að vera fluttur frá Hellu og hingað vestur :p

Re: Gosið er hafið

Posted: 21.mar 2010, 12:26
frá Andri M.
eg væri svo allveg til í að renna þarna uppeftir og skoða þetta

Re: Gosið er hafið

Posted: 21.mar 2010, 13:05
frá jeepson
Því miður er ekkert hægt að fara að skoða þar sem að löggan og allir þeir sem í þessu standa loka alveg fyrir alla umferð og hleypa bara þeim í gegn sem hafa einhver erendi þarna í kring. svosem bændum :)

Re: Gosið er hafið

Posted: 21.mar 2010, 16:01
frá jeepson
jæja strákar. ég var að lesa þetta á visir.is

Öllum lokunum hefur verið aflétt á Suðurlandsvegi en þar hefur umferð verið takmörkuð frá því eldgos hófst í Eyjafjallajökli. Þessi ákvörðun var tekin á aðgerðarstjórnarfundi sem haldinn var á Hellu klukkan þrjú í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli er fólki því heimilt að fara um veginn hindrunarlaust.

Re: Gosið er hafið

Posted: 21.mar 2010, 17:19
frá Stebbi
Er þetta þá ekki spurning um að setja gosbeltin undir og kíkja.

Re: Gosið er hafið

Posted: 21.mar 2010, 17:41
frá jeepson
Stebbi wrote:Er þetta þá ekki spurning um að setja gosbeltin undir og kíkja.


klárlega :D

Re: Gosið er hafið

Posted: 14.apr 2010, 11:23
frá gislisveri
Stebbi wrote:Er þetta þá ekki spurning um að setja gosbeltin undir og kíkja.


Ef þú ert ekki að nota þau, þá myndi ég alveg þiggja þau að láni :)

Re: Gosið er hafið

Posted: 14.apr 2010, 12:22
frá SverrirO
hvernig er það er þetta sama sprungan eða eitthver önnur?

Re: Gosið er hafið

Posted: 14.apr 2010, 12:54
frá gislisveri
Þessi er ný, miklu stærri og undir Eyjafjallajökli, líklegast í gígnum sjálfum og aðeins suður úr honum, skv. Magnúsi Tuma.

Re: Gosið er hafið

Posted: 14.apr 2010, 19:26
frá Ofsi
Bara minna ykkur á það að það er bannað að aka ofaní gýgin í Eyjafjallajökli og það er líka banna að vera að sullast í glóandi hrauni á jeppum.
Svandís bað mig um að koma þessu til skila til jeppakalla og kvenna
kv Ofsi

Re: Gosið er hafið

Posted: 15.apr 2010, 00:50
frá Brjótur
Já skilaboðin eru móttekin:)

Re: Gosið er hafið

Posted: 15.apr 2010, 10:21
frá Tómas Þröstur
Þetta er gos er ekki sama partíð og það fyrra, meiri alvara núna enda gjóskugos. Aska er þegar farin að valda bændum vandræðum í byggð námunda við gosstöðvarannar. Millilandaflugumferð er farin að hiskta. Það er vel hægt að ímynda sér hvað hálflamað flug gæti gert ferðaþjónustunni hér á landi ef gosið varið út sumarið eða í nokkur ár kannski. Ekki eru allir ferðamenn sem hingað leita til Íslands að öllu jöfnu svo brjálaðir að vilja koma hingað bara út af gosinu. Einhverjir koma þó bara út af gosinu og gætu haft eitthvað smá mótvægi við þá hina sem hætta við komu hingað ef gosið varir lengi.

Re: Gosið er hafið

Posted: 16.apr 2010, 18:27
frá Stebbi
Heyrst hefur í óspurðum fréttum að Svandís hafi verið að dást að gosinu um daginn þegar að Ofsinn kom askvaðandi að henni og ætlaði að lesa henni pistilinn. Þá var eins og það rofaði til á himnum og eins og í Disney teiknimynd þá voru blóm og syngjandi fuglar um allt og gagnkvæm hrifning leyndi sér ekki. Staðkunnugir staðháttarmenn segja að hægt hafi á gosinu á þessu augnabliki og það sé engin ástæða til að friða það úr þessu.

Enn á ný sannar Ofsinn sig og sýndi það að með karlmenskunni og duglegum skammt af testósterum er hægt að stöðva eldgos og snarbrjálaðar kellingar. Spurning hvort er meira afrek?