Síða 1 af 1
Steinolía á Trooper
Posted: 23.júl 2011, 00:43
frá qbang
Sælir eru einhverjir hér sem geta sagt mér hvort hægt sé að aka Isuzu Trooper á steinoíu hann er 3.0 dísel 99 model
Re: Steinolía á Trooper
Posted: 23.júl 2011, 01:15
frá jeepcj7
Það er bara ljúft að keyra trooper á steinolíu verður að mér finnst aðeins máttlausari og örlítið háværari en virkar samt talsvert betur en patrol.
Re: Steinolía á Trooper
Posted: 23.júl 2011, 05:11
frá GFOTH
ég nota steinoliu minn trooper og finn eingan mun
Re: Steinolía á Trooper
Posted: 23.júl 2011, 22:28
frá qbang
Eru menn þá að nota óblanaða steinolíu?
Re: Steinolía á Trooper
Posted: 24.júl 2011, 03:43
frá GFOTH
ég nota hreina steinoliu
Re: Steinolía á Trooper
Posted: 24.júl 2011, 13:54
frá jeepcj7
Bara pura steinolía
Re: Steinolía á Trooper
Posted: 24.júl 2011, 16:34
frá jeepson
Maður hefur heyrt að það sé gott að hafa líter af tvígengis olíu útí fullann tank. Ég gerði þetta á benz fólksbíl sem að ég átti og hætti þessu eftir einn tank. Hann varð leiðinlegri í gang. glamraði meira, máttlausari og mátti nú ekki við að missa þann litla kraft sem að hann hafði. Svo var sparnaðurinn ekkert svo rosalegur. En sparnaðurinn verður auðvitað meiri ef menn keyra á pjúra steinolíu.
Re: Steinolía á Trooper
Posted: 27.júl 2011, 12:21
frá joipalli
Ég hef ekki enn rekist á greinar/rannsóknir sem sýna að smureiginleiki Jet A1 (steinolíu) sé undir viðmiðunarmörkum sem eru 460 um í HFRR prófi. Hinsvegar var steinolía notuð á flest öll ökutæki, hitablásara og rafala í Persaflóastríðini án mikilla vandræða.
Hérna er t.d. rannsókn á íblöndunarefnum í gasolíu, (ULSD sem seld er í USA, ekki steinolía) til þess að auka smureiginleika:
http://www.motormayhem.net/wp-uploads/2 ... sion-3.pdfÞarna sést að lífdísell 2% gaf bestu niðurstöðuna, undan díselbætiefnum, tvígengisolíu (TC-W3) og notaðri mótorolíu (15w-40)
Sjá má póst á bmwkraft um steinolíu:
http://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.p ... 3&start=15Kv. Jóhannes Páll
Re: Steinolía á Trooper
Posted: 28.júl 2011, 17:16
frá rottinn
jeepson wrote:Maður hefur heyrt að það sé gott að hafa líter af tvígengis olíu útí fullann tank. Ég gerði þetta á benz fólksbíl sem að ég átti og hætti þessu eftir einn tank. Hann varð leiðinlegri í gang. glamraði meira, máttlausari og mátti nú ekki við að missa þann litla kraft sem að hann hafði. Svo var sparnaðurinn ekkert svo rosalegur. En sparnaðurinn verður auðvitað meiri ef menn keyra á pjúra steinolíu.
LÍTER af tvígengisolíu útí hvern fullan tank??? Þá hugsa ég að það sé nú ódýrara að kaupa bara hráolíuna..