Síða 1 af 1

Musso ??

Posted: 16.júl 2011, 11:05
frá Palli
sælir.
hvernig eru musso að koma út 96-01 bensín eða dísel óbreyttir, einhver sem hefur reynslu að eyðslu og áræðanleika? eða eru þetta dósir?

kv.

Re: Musso ??

Posted: 16.júl 2011, 11:17
frá arni87
Ég er á einum 97 árgerð, 38" breyttum, hann bilar ekki meira en Hiluxinn sem pabbi átti.

Stóri veiki hlekkurinn á þessum bílum er rafmagn í rúðum þessháttar smotterí.
En stór kostur á móti að Benni er ekki að selja varahlutina svo dýrt að það kosti haus og fót að versla varahluti hjá honum.

Ef þú hugsar vel um þessa eðalvagna þá endast þeir.

Re: Musso ??

Posted: 20.júl 2011, 12:47
frá G,J.
Sæll.
Er með 98 árg með 2.9 dísel á 35" dekkjum,hann hefur reynst vel hingað til,þægilegur í akstri bæði
á malbikinu og fjallaslóðum.
Eyðsla 10-12 ltr eftir aðstæðum.
Setti í hann RR gorma í vor og kemur vel út,eina sem vantar eru almennilegir demparar að aftan :)

Kv.Guðmann