Síða 1 af 1

Landafræðispurning

Posted: 27.jún 2011, 19:56
frá Ofsi

Re: Landafræðispurning

Posted: 27.jún 2011, 19:57
frá Ofsi
Hvernig kem ég myndinni inn í þráðin ?##33((88##bergelen-satana#/&&&%%""
kv Ofsi :-)

Re: Landafræðispurning

Posted: 27.jún 2011, 20:59
frá -Hjalti-
Ofsi wrote:Hvernig kem ég myndinni inn í þráðin ?##33((88##bergelen-satana#/&&&%%""
kv Ofsi :-)


Sæll Ofsi.
Þú klikkar á myndina á facebook veggnum hjá þér.
Þegar þú svo sérð hana í fullri stærð klikkar þú á hana með hægri takkanum á músini og velur (fer.eftir forritum) properties og cóperar addressuna sem þar poppar upp sem í þessu tilviki er-

http://a4.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos- ... 2557_n.jpg

Svo ferðu hér inn á þráðin hjá þér og paste-ar addressuna inn á póstinn
Þarft að klikka á takka hér upp sem stendur á (img)
þá lítur þessa svona út

[img]"http://a4.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc6/269106_1920295759962_1019074319_3309760_4312557_n.jpg"[/img]

Svo er bara að ýta á senda :)

Re: Landafræðispurning

Posted: 27.jún 2011, 21:01
frá Ofsi
Takk takk, ætlar enginn að giska á neitt.

Re: Landafræðispurning

Posted: 27.jún 2011, 21:01
frá -Hjalti-
Image

Re: Landafræðispurning

Posted: 27.jún 2011, 21:06
frá hobo
Er þetta ekki malarhóll hjá Vegagerðinni?

Re: Landafræðispurning

Posted: 27.jún 2011, 21:22
frá Ofsi
:-) vegagerðin hefur lítið verið á þessu svæði. Þetta er ein flottasta auðn landsins og sennilega með þeim fáfarnari. Og malarhaugurinn er hærri en nokkur haugur sem vegagerðin hefur gert, reyndar yfir 600 metra h.y.s

Re: Landafræðispurning

Posted: 27.jún 2011, 21:53
frá Ofsi
þetta er ekki að gera sig hjá ykkur, hér er vísbending og er þá ansi mikið útilokað. þessi hæð er utan miðhálendisins

Re: Landafræðispurning

Posted: 27.jún 2011, 22:19
frá Stebbi
Mælifellssandur?

Re: Landafræðispurning

Posted: 27.jún 2011, 22:56
frá Izan
Sæll nafni.

Ég hef ekki grun um hvað hóllinn heitir en mér finnst landslagið minna svolítið á norðaustur hálendið s.s. norðaustur af Grímsstöðum á Fjöllum. Svolítið auðvelt að ímynda sér akstur á tunglinu á ákveðnum stöðum á þeirri leið sem liggur með símalínunni um Haugsöræfi.

Er ég heitur?

Kv Jón Garðar

Re: Landafræðispurning

Posted: 27.jún 2011, 23:44
frá khs
Nálægt Veiðivötnum?

Re: Landafræðispurning

Posted: 28.jún 2011, 05:30
frá Ofsi
Já Jón Garðar, nú ert þú volgur

Re: Landafræðispurning

Posted: 28.jún 2011, 22:09
frá Izan
Sæll

Ég verð að viðurkenna þær syndir mínar að hafa ekki farið þetta langt inn á heiðina en ég ætla að giska á að þarna sé myndavélinni beint í norðvestur eftir Sandhnjúkum.

Ég man nefninlega ekki eftir svona áberandi stökum hól á neinni þeirra leiða sem ég hef farið þarna. En það er trúlega rétt að þetta er sennilega minnst sótta hálendissvæði landsins og reyndar alveg hrikalega gaman að heimsækja. Ég fór þarna um í fyrsta sinn að vetrarlagi í vetur og það var magnað.

Kv Jón Garðar

Re: Landafræðispurning

Posted: 28.jún 2011, 23:04
frá Ofsi
Það var kannski smá óþvera bragð að koma með mynd af staða sem svo fáir hafa komið á. Sem er þó alls ekki svo langt frá þjóðveginum en þó svo langt frá honum. En þessi mynd er tekin á Einbúasandi, sem er norðaustan við Víðidal. Norðausturland er svæði sem jeppamenn mættu kynna sér betur og þar eru fjölmargar spennandi slóðir. Sérstaklega vill ég benda á gömlu Símaleiðina sem liggur frá Grímstöðum á Fjöllum austur á Vopnafjörð. Á þessum slóðum er þó betra að vera á fleiri en einum bíl. Því ýmsir farartálmar geta verið á slóðunum. Sérstaklega votlendi og svo er ansi langt til byggða og ekki eins gemsan að treysta einsog sunnan lands.