Síða 1 af 1
6x9" Hátalarar.
Posted: 22.jún 2011, 16:30
frá jeepson
Sælir spjall verjar. Ég veit ekkert hvort að þessi þráður sé á réttum stað en ég vona þá að stjórnendur færi hann á réttan stað. En þannig standa málin hjá mér að ég er með par af 6x9 hátölurum sem að ég var að pæla í að setja í afturhlerana á pattanum mínum. Hefur einhver hérna sett 6x9 í hlerana á patrol. Var að pæla hvort að það væri nokkuð annað en að stækka bara gatið í hlerunum?? Ég hef pínu áhyggjur af dýptinni. En á þá eftir að mæla það betur. En mér sýnist svona í fljótubragði að ég þurfi jafnvel að smíða spacer til að segullinn á hátalaranum fari ekki í ytrabyrðið á hurðinni.
Re: 6x9" Hátalarar.
Posted: 22.jún 2011, 18:02
frá LFS
þettað er ekkert annað en að stækka gatið sem fyrir var i versta falli þarftu að smiða spacer !
Re: 6x9" Hátalarar.
Posted: 22.jún 2011, 18:45
frá jeepson
Ok. frábært. Þá ræðst maður í að stækka götin um helgina og henda þessu í :)
Re: 6x9" Hátalarar.
Posted: 23.jún 2011, 22:02
frá risinn
Gísli bara ein spurning til þín. Ertu með hátalara í hurðunum aftur í og í framm hurðum ?
Það sem ég veit að hátalarar í skott hurðum einum og sér skila litlum árangri ef þú hefur ekki fleiri hátalara með.
Kv. Ragnar Páll.
Re: 6x9" Hátalarar.
Posted: 23.jún 2011, 22:17
frá jeepson
Það eru orginal hátalararnir í bílnum. En svo virðist sem að þeir virki ekki í í skott hurðunum. Ég hef svosem ekkert kíkt á það. Svo var ég að pæla í að fá mér einhverja þokkalega 6" hátalara í fram hurðarnar. Ég sá einmitt á áströlsku patrolspjalli að það sé ekkert mál að setja 6" í framhurðarnar.
Re: 6x9" Hátalarar
Posted: 24.jún 2011, 07:55
frá LFS
þu verður þa að passa þig að hafa þa ekki djupa það er ansi stutt i hliðarruðuna svona þegar hun er skrufuð niður ! eg setti 6 hatalara i bilinn hja mer þeas i allar hurðarnar !
Re: 6x9" Hátalarar
Posted: 24.jún 2011, 15:53
frá jeepson
49cm wrote:þu verður þa að passa þig að hafa þa ekki djupa það er ansi stutt i hliðarruðuna svona þegar hun er skrufuð niður ! eg setti 6 hatalara i bilinn hja mer þeas i allar hurðarnar !
Okey. Er ekki bara ein dýpt á þessum 6" hátölurum? Ég er nú eiginlega alveg dottinn úr þessu græjudóti. Enda lítið pláss fyrir bassa box eftir að maður tók uppá því að eignast börn.
Re: 6x9" Hátalarar.
Posted: 25.jún 2011, 12:00
frá spazmo
getur fengið mis djúpa hátalara.