Síða 1 af 1

Hvernig væri?

Posted: 21.jún 2011, 10:48
frá LeibbiMagg
sælir nu er nátturulega allveg einstaklega gott veður þessa daga og alltí einu fékk ég flugu í hausinn

hvernig væri að hafa einn daginn einhvern hitting hérna á suðurlandinu

hægt væri að finna einhvern góðan stað grilla og skoða bílana hjá öllum og svona

nei ég bara segi svona allar ábendingar, hugmyndir og hvað sem brennir á vörum ykkar velkomnar

Re: Hvernig væri?

Posted: 21.jún 2011, 13:35
frá arni hilux
ekki vitlaus hugmynd það. enda eða byrja á jeppaferð

Re: Hvernig væri?

Posted: 21.jún 2011, 17:29
frá LeibbiMagg
já flott það lýst vel á það

Re: Hvernig væri?

Posted: 22.jún 2011, 23:15
frá hobo
Maður hefur heyrt verri hugmynd.
Það eina sem þarf er að einhver/jir fari í málið, ákveða stað og stund.

Re: Hvernig væri?

Posted: 22.jún 2011, 23:48
frá LeibbiMagg
jú var að tala við jeepson/gísla áðan og hann bolvaði (ekki í hljóði) yfir því að búa þarna fyrir vestan þegar hann sá þetta

er ekki bara fint að taka rúnt á strandirnar og menn þarna fyrir vestan mæta okkur þar og svo verður grillað
hef ekkert pælt þetta út þannig ef menn eru með betri hugmynd þá um að gera koma með hana

Re: Hvernig væri?

Posted: 23.jún 2011, 13:28
frá hobo
Hér eru daufar undirtektir.
Það þarf bara að auglýsa þetta, þá mæta einhverjir.
Annars grunar mig að stór hluti "jeppamanna" séu bara áhugamenn um jeppana sem slíka en ekki að ferðast á þeim.

Re: Hvernig væri?

Posted: 23.jún 2011, 13:33
frá khs
Sleppa grilli, bara hittast, skoða bílana og fara svo að jeppast í nokkra klukkutíma. ;)

Re: Hvernig væri?

Posted: 23.jún 2011, 14:26
frá LeibbiMagg
það er líka hugmynd er ekki einhver til i ad taka ad ser ad skipuleggja thetta og auglýsa betur

Re: Hvernig væri?

Posted: 23.jún 2011, 14:58
frá khs
Það eru til fullt af leiðum í bókinni hans Ofsa t.d., svo eru til miki fleiri leiðir. Það er t.d. hægt að taka eina leið á viku. Einn(eða fleiri) getur tekið að sér að nota síðuna www.teamfinder.org. Þar setur maður inn ferðina, nöfn og netföng þeirra sem langar mögulega með. Heimasíðan sér svo um að senda tpósta á alla og þeir fá þá link á skráningarform sem þeir svo segja já, nei eða kannski. Þessa síðu nota ég til að halda utan um hópinn sem ég er með í fótboltanum, menn fá alltaf tpósta, melda sig á síðuna og þá sér maður strax hve margir mæta.

Re: Hvernig væri?

Posted: 23.jún 2011, 15:31
frá hobo
Þetta er flott, búinn að skoða aðeins þessa síðu og er að fatta þetta.
Best væri ef það væri fleiri en einn sem gætu séð um setja inn ferðir inná þessa síðu, svona til að það sé ekki bara einn aðili sem legði það á sig.
Þá væru þeir með sameiginlegan aðgang að síðunni.
Svo geta aðrir auðvitað komið með hugmyndir af góðum leiðum.
Ég get boðið mig fram í skipulagningu ferða.

Re: Hvernig væri?

Posted: 23.jún 2011, 15:45
frá khs
Það yrðu auðvitað að vera einfaldar reglur. Hver og einn ber ábyrgð á sínum bíl sama hvað á gengur, vissur búnaður þarf að vera til staðar og fleira svona í anda Litlunefndar F4x4. Þetta þarf allt að vera á hreinu áður en í fyrstu ferð er farið. Svo þarf að safna nöfnum, netföngum og gsm númerum.

Re: Hvernig væri?

Posted: 23.jún 2011, 18:10
frá LeibbiMagg
snildin einar ég er að sjálfsögðu með gaman væri ef fleiri létu í sér heira herna:)

Re: Hvernig væri?

Posted: 23.jún 2011, 19:41
frá hobo
khs wrote:Það yrðu auðvitað að vera einfaldar reglur. Hver og einn ber ábyrgð á sínum bíl sama hvað á gengur, vissur búnaður þarf að vera til staðar og fleira svona í anda Litlunefndar F4x4. Þetta þarf allt að vera á hreinu áður en í fyrstu ferð er farið. Svo þarf að safna nöfnum, netföngum og gsm númerum.


Mikið rétt.
Ákveðna hluti þurfa bílar að uppfylla fyrir hverja og eina ferð.
T.d. verður VHF að vera skilyrði í öllum ferðum.

Ég skal stofna nýjan þráð til að safna nöfnum, netföngum og símanúmerum.
Þá kemur í ljós mælanlegur áhugi jeppaspjallverja.

Re: Hvernig væri?

Posted: 23.jún 2011, 19:47
frá jeepson
Væri ekki sniðugt að þið sem hafið áhuga svona ferð að hittast og planleggja þetta eitthvað. Svona þegar verður búið að fá nægilegan fjölda af fólki með. Ég væri alveg game í að mæta. En pattinn minn fer af númerum núna fljótlega þar sem að ég ætla að eyða hluta af sumrinu að dunda í honum.

Re: Hvernig væri?

Posted: 23.jún 2011, 22:06
frá risinn
Tjald,Öl,grill og fl. upp í sveit það virkar.

Re: Hvernig væri?

Posted: 24.jún 2011, 16:22
frá LeibbiMagg
já það er klárlega það sem á að gera fara eithvert taka helgi á þetta eða eithvað tjalda grilla smá öl og taka ferðir útfrá tjaldstað á daginn