Síða 8 af 12

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 02.nóv 2013, 21:20
frá jeepcj7
Verið að grunna og mála felgur fyrir keyrsludekkin undir pikkann.

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 02.nóv 2013, 21:48
frá LFS
ástmar til hvers er klósettpappirinn við hliðina á tölvunni ?

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 02.nóv 2013, 21:53
frá Startarinn
"HÓST" kvefaður sko......

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 03.nóv 2013, 15:39
frá Árni Braga
þar kom að því að maður fékk sér Toyotu
helgin búin að fara í að laga rafmagn,tengja kastara, koma fyrir loftdælu, auka rafkerfi ofl.
næst er að setja úrhleypi búnað í tækið,festingu fyrir drullutjakk og skóflu ( ef einhver veit um festingu láta mig vita )
því næst er að stækka dekkin upp í 42"eða stærra ??

Lifið lífinu félagar.

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 03.nóv 2013, 16:17
frá Hr.Cummins
Image

Myndin segir allt :lol:

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 04.nóv 2013, 14:29
frá hobo
Nú er maður búinn að gera upp varatúrbínuna og er hún klár til ísetningar. Ætti að vera fljótlegt að skipta um þar sem ég er nýbúinn að losa um bínuna sem er í bílnum.

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 04.nóv 2013, 15:00
frá villi58
hobo wrote:Nú er maður búinn að gera upp varatúrbínuna og er hún klár til ísetningar. Ætti að vera fljótlegt að skipta um þar sem ég er nýbúinn að losa um bínuna sem er í bílnum.

Var þetta nokkuð mál að gera hana upp, eitthvað öðruvísi en í öðrum ?

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 04.nóv 2013, 17:47
frá hobo
Þetta var mín fyrsta að gera upp, svo ég þekki það ekki.

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 04.nóv 2013, 20:22
frá íbbi
keypti mér montero um daginn, mig hafði verið búið að langa í svona bíl sem fjölskyldubíl. þá með leðri og öllum pakkanum 03+

svo kom að því að fara stækka aðein við okkur heimilið og skiptihugmyndir settar af, og fjölskyldubíllinn settur á sölu, og það vildi svo skemmtilega til að mér var boðið 2002 montero upp í. xls bíll án leðurs,

bíllinn er öllu subbulegri en ég vill hafa þá. og alveg kominn tími á að fara sjæna aðeins, en hann er vel keyrandi og hjólabúnaður og undirvagn allur í lagi.

bíladellan er eins og hún er og nú er ég búinn að tæta einn 03+ limited bíl í frumeyndir og kominn með complete svarta leðurinnréttingu ásamt öllum panelum og teppi.
fékk undir hann 03+ pajero felgur og vetrardekk, ætla svo að mála neðri helminginn af honum svartan og losa krómið af grillinu eða fá grill af yngri bíl

Image

Image
Image
Image

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 04.nóv 2013, 20:52
frá StefánDal
Þessi verður svakalega flottur einlitur svartur. Tala nú ekki um á 33" með köntum :)
Image

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 04.nóv 2013, 22:40
frá íbbi
já þeir eru alveg glettilega myndarlegir þegar þeir eru með kantana,,

ég vildi fá akkurat svona bíl eins og er á myndini, en ég verð að segja eftir að hafa ekið þeim nokkrum svona breyttum upp á síðkastið að það er tvennt sem situr dáldið í mér varðandi breytinguna,
það fyrsta er hversu hastir þeir verða þegar það er búið að hækka þá. sumir voru bókstaflega eins og þeir væru nánast fastir að framan.
hitt er svo eyðslan, ég óttast að hún fari úr því að vera ca þolanleg yfir í að verða það bara alls ekki, hef heyrt 3-5l hækkunfyrir 33-5" breytta bíla.

þannig að ég er búinn að vera í smá pælingum hvort það myndi ekkki alveg ganga að fá bara kantana og setja hann á 10" breiðar útvíðar felgur. og halda þá fjöðrunini alveg óbreyttri, en fá lúkkið

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 04.nóv 2013, 22:43
frá íbbi
annars getur varla þurft að hækka mikið. bíllinn er á 33" á myndini, ég var hálf hissa hvað þau fara greinilega auðveldlega undir

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 04.nóv 2013, 23:00
frá rabbimj
hobo wrote:Þetta var mín fyrsta að gera upp, svo ég þekki það ekki.


Heill og sæll Hörður

Hvar fékkstu viðgerðarsett í hana? og hvað kostaði það?

mbk
RAbbi

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 05.nóv 2013, 00:25
frá hobo
Bara á ebay, finn ekki nákvæmlega það sem ég pantaði, en það er nóg úrval af þessu.
http://www.ebay.com/sch/i.html?_trksid= ... &_from=R40

Það kom reyndar önnur legan vitlaus, þannig að ég pantaði tvær aukalegur.
Mig minnir að settið hafi kostað um 8500 kall og aukalegurnar um 2500. Enginn peningur ef þetta er að virka.

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 05.nóv 2013, 12:03
frá hobo
Image

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 08.nóv 2013, 20:38
frá Subbi
Sótti felgur úr breikkun fór í 19 tommu breidd með þær

henti skónum á þær og grófstillti hásingu undir og er ég nokkurn veginn búinn að ákveða að hafa hana þar sem hún er í dag á morgun verður svo skorið úr stuðara sem er eini skurðurinn sem þarf að framkvæma með tilliti til samsláttar og er bíllinn mjög hár en breiddin líka mikil klárta að ganga frá framhásingu á morgun en stífur úr RAM eru láréttar í þessari stöðu á hásingu og afstaðan á millikassan fín

ef ég lækka hann þá þarf ég að skera úr brettinu líka en eins og er er ég eiginlega kominn á að láta hann standa eins og á myndini og fara svo í afturhásingu á Sunnudag og mnæanudag og vonandi rúllað honum í kantasmíði á Þriðjudag miðvikudag ogþá er allt klárt til að rúnta smá og prufa en stefnt er að heilmálun í Desember en það gæti dregist fram yfir áramót rúmlega þar sem verkefnastaða sprautarans hjá mér var að breytast verulega en þá sprauta ég kantana bara svarta þangað til hann fær heilmálun :)

en í dag stóð hann svona á hásinguni réttur á stífum og afstaða á hjörlið og millikassa góð og reikna ég með að hann verði því hafður svona þar sem nánast ekkert þarf að sketra úr nema framstuðaranum

Image

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 08.nóv 2013, 23:54
frá Hr.Cummins
Hefðum eiginlega átt að halda okkur við 18" breidd eins og upprunalega var ákveðið, en svo datt maður í vitleysuna...

Frá ytri felgubrún, að ytri felgubrún, eru 260cm !!!

255cm er hámarksbreidd og því hefur auka tomma á hverri felgu eitthvað að segja, en svo er spurning...

breidd ökutækisins sem slík, er hún mæld frá brettakanti í brekttakanti... og dugir þá að brettakantarnir coveri munstrið, eða þurfum við að færa backspace-ið um 5cm hvorumegin eða mjókka felgurnar aftur ???

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 09.nóv 2013, 00:00
frá -Hjalti-
Dótakassinn er að fá "nýtt gólf"

Image

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 09.nóv 2013, 00:42
frá Hr.Cummins
Flottur Hjalti....

Þið hafið ekkert velt fyrir ykkur að flísaleggja, það auðveldar þrif alveg SLATTA !

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 09.nóv 2013, 00:44
frá Startarinn
Hr.Cummins wrote:Hefðum eiginlega átt að halda okkur við 18" breidd eins og upprunalega var ákveðið, en svo datt maður í vitleysuna...

Frá ytri felgubrún, að ytri felgubrún, eru 260cm !!!

255cm er hámarksbreidd og því hefur auka tomma á hverri felgu eitthvað að segja, en svo er spurning...

breidd ökutækisins sem slík, er hún mæld frá brettakanti í brekttakanti... og dugir þá að brettakantarnir coveri munstrið, eða þurfum við að færa backspace-ið um 5cm hvorumegin eða mjókka felgurnar aftur ???


Ég leit í reglugerðina, ég get ekki séð neina skilgreiningu á hvað skal mælt, yfirleitt er vísað í EBE tilskipanir varðandi frágang á ytra byrði, en það eina sem virðist undanskilið því í reglugerðinni eru loftnet, speglar og dráttarkúlur. En samt stendur þetta hvergi svo skýrt að það sé hægt að fullyrða þetta.

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 09.nóv 2013, 00:50
frá Hr.Cummins
Annars er fullt að gerast í skúrnum:

Image

Image

og í hinum skúrnum (vinnunni):

Image

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 09.nóv 2013, 00:52
frá -Hjalti-
Hr.Cummins wrote:Flottur Hjalti....

Þið hafið ekkert velt fyrir ykkur að flísaleggja, það auðveldar þrif alveg SLATTA !


þetta er leigupláss svo að flísalagning var ekki möguleiki , maður verður bara að þrífa eftir hvert subberý og þá er þetta ekkert stórmál

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 09.nóv 2013, 01:08
frá Brjotur
Viktor og Gummi það er i lagi þo belgurinn standi ut fyrir kantana , það er miðað við munstrið :) en hvern fjan..... eruð þið að gera við 44 DC ??? 46 er nu malið :)

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 09.nóv 2013, 18:56
frá Subbi
Brjotur wrote:Viktor og Gummi það er i lagi þo belgurinn standi ut fyrir kantana , það er miðað við munstrið :) en hvern fjan..... eruð þið að gera við 44 DC ??? 46 er nu malið :)



Helgi minn gamli vinur þú reddar mér bara nokkrum léttum túrum svo ég geti safnað mér fyrir 46 tommuni hún mun passa undir ;)

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 11.nóv 2013, 01:17
frá Subbi
Jæja Lyftan kominn undan og bíllin sestur á gorma og stífur og kemur bara ljómandi vel út

Image

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 11.nóv 2013, 01:52
frá lecter
i skúrnum gerist ekkert nema að ég hef selt 2 jeppa og einn fer á morgun það er fint wranglerinn svarti er en til og stendur inni en ég hef leigt út annað húsnæðið jeppa mönnum mér dugar alveg að lita þangað af og til ,,,,


þessir eru seldir Bronco 72 , willys 46 og 4 runner 91 nóg til en af jeppum

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 11.nóv 2013, 02:04
frá Hr.Cummins
Við þurfum að koma þessum Wrangler í gagnið hjá þér Lecter... þó að það sé ekki nema til þess að hafa hann í spotta aftan í Suburban ;)

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 12.nóv 2013, 22:24
frá runar7
alltaf eitthvað að gerast í skúrnum, leyfði mussonum hjá mér að fá vörubíl í matinn og komst að því að hann er matvandur greyið þannig nú er mál að rétta bara eftir að pússla saman

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 20.des 2013, 00:07
frá jeepson
Eftir mikla vinnu síðustu mánuði er ég farinn að fá pínu frítíma og þar með get ég farið að vinna í jeppanum. Aftur drifið er komið í aftur með nýjum legum. Nýjar pakkdósir komnar í hásinga stútana að aftan. Ég er að verða búinn að ganga frá aftur læsinguni eins og ég vil hafa hana. Eina sem er eftir er að ganga frá brakketinu sem stýringarnar fyrir læsinguna festast í. Við byrjuðum aðeins að reka nýja feglubolta í öxlana í kvöld og klárum það á morgun. Og þá verður væntalega klárað að raða saman ef að tími gefst. Planið er að hann verði kominn út í síðasta lagi á laugardaginn 21. des og prufað aðeins þá. þessi vinna er slíta frítíman of mikið í sundur hjá manni.

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 10.jan 2014, 13:10
frá Hfsd037
Voða lítið búið að gerast í skúrnum hjá mér undanfarið, en er að skipta um fjaðrir í Nissan..

Image

Image

Image

Hér er þröngt á þingi.
Image

Image

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 15.jan 2014, 20:59
frá Guðninn
það er eitthvað að gerjast í skúrnum

Image

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 16.jan 2014, 06:50
frá firebird400
Flott fjöðrun og turbo, nice

í hvernig bíl er þetta?

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 16.jan 2014, 07:37
frá Valdi B
er þetta dodge ram ?

er þetta unimog hásing ?

er þetta hvítur 54" breytur ram á unimog hásingu ?

set eitt spurningamerki í viðbót?

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 16.jan 2014, 08:34
frá Guðninn
valdibenz wrote:er þetta dodge ram ?

er þetta unimog hásing ?

er þetta hvítur 54" breytur ram á unimog hásingu ?

set eitt spurningamerki í viðbót?


næstum fullt hús stiga nema liturinn klikkaði !

Þessi er silfraður og er að koma úr aðgerð stækka úr 49" í 54" og svo var bætt aðeins í turbóið

það verður gaman að komast í snjóinn, nóg virðist vera af honum allavega :)

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 16.jan 2014, 23:22
frá Valdi B
Guðninn wrote:
valdibenz wrote:er þetta dodge ram ?

er þetta unimog hásing ?

er þetta hvítur 54" breytur ram á unimog hásingu ?

set eitt spurningamerki í viðbót?


næstum fullt hús stiga nema liturinn klikkaði !

Þessi er silfraður og er að koma úr aðgerð stækka úr 49" í 54" og svo var bætt aðeins í turbóið

það verður gaman að komast í snjóinn, nóg virðist vera af honum allavega :)


hehe djöfull er ég öflugur :D það verður gaman að sjá meira um þennan bil hjá þér :)

væri gaman að sjá gallerý þráð um bílinn hjá þér ;)

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 17.jan 2014, 02:46
frá Fetzer
geggjað, ertu að nota 1200kg púðana ur landvelum með plastbotna?

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 18.jan 2014, 12:58
frá Hr.Cummins
Guðninn wrote:
valdibenz wrote:er þetta dodge ram ?

er þetta unimog hásing ?

er þetta hvítur 54" breytur ram á unimog hásingu ?

set eitt spurningamerki í viðbót?


næstum fullt hús stiga nema liturinn klikkaði !

Þessi er silfraður og er að koma úr aðgerð stækka úr 49" í 54" og svo var bætt aðeins í turbóið

það verður gaman að komast í snjóinn, nóg virðist vera af honum allavega :)


Hvað var bætt :?: er þetta Holset HE351 VGT með e'h mods ?

Svona fyrir Cummins jeppakallana... þá er mjög sterkur leikur, hvort sem að menn eru með 12 ventla, 24 ventla eða commonrail... meira að segja 6.7 lítra.... að versla Borg Warner S300 57-65-14...

Þetta er alveg perfect setup fyrir þá sem að vilja orkuna fyrr inn, en samt viðhalda lágmarks afgashita... fínt fyrir commonrail bíla með tölvukubb eða olíuverksbíla með léttum mods...

Hérna má sjá myndband af Cummins 24ventla olíuverks... með 90hp spíssum og S300 57-65-14 að taka Charger :)

http://www.youtube.com/watch?v=nHrWuTtr598

og annað af gömlum 12ventla 1gen með stjöruverki:

http://www.youtube.com/watch?v=McZIKX-W09M#t=155

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 18.jan 2014, 17:05
frá Guðninn
Fetzer wrote:geggjað, ertu að nota 1200kg púðana ur landvelum með plastbotna?


jebb firestone, þeir hafa verið að reynast mjög vel þessir, verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út vorum á gormum að framan en púðum að aftan á 49". Verður gaman að prófa þetta með púðum hringinn.

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 18.jan 2014, 17:33
frá Hr.Cummins
Guðninn wrote:
Fetzer wrote:geggjað, ertu að nota 1200kg púðana ur landvelum með plastbotna?


jebb firestone, þeir hafa verið að reynast mjög vel þessir, verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út vorum á gormum að framan en púðum að aftan á 49". Verður gaman að prófa þetta með púðum hringinn.


Hvaða mods gerðuð þið með túrbínuna ??

Re: Hvað er að gerast í skúrnum?

Posted: 18.jan 2014, 18:04
frá Guðninn
Hr.Cummins wrote:
Guðninn wrote:
Fetzer wrote:geggjað, ertu að nota 1200kg púðana ur landvelum með plastbotna?


jebb firestone, þeir hafa verið að reynast mjög vel þessir, verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út vorum á gormum að framan en púðum að aftan á 49". Verður gaman að prófa þetta með púðum hringinn.


Hvaða mods gerðuð þið með túrbínuna ??


fórum í þetta sett hérna, bd rt 700

http://www.dieselperformance.com/index.php/product/index/6P

breytingalistinn er orðinn vel langur, hendi honum inn við tækifæri spurning hvort við splæsum bara í þráð um bílinn þegar maður gefur sér tíma í það