Síða 1 af 1

sd33t i y60

Posted: 14.jún 2011, 19:14
frá LFS
hvernig væri best að kluðra rafmagninu saman ur 24v vél i 12v bil er með einhverjar hugmyndir hvernig væri hægt að hafa þettað en það er kannski einhvern patent lausn a þessu sem eg kem ekki auga á ! allar pælingar og vangaveltur vel þegnar !

Re: sd33t i y60

Posted: 14.jún 2011, 23:41
frá Offari
Þessar vélar voru líka til 12 volta. td í Skout. þannig að þú ættir að geta fengið 12 volta rafkerfi við vélina. Hitt er líka mögulegt að hafa tvöfalt rafkerfi tvo altenatora 12 og 24 volta. En svoleiðis kallar á 3 rafgeyma. Eignig er hægt að fá pung sem tengir saman tvo geyma í starti en ég veit ekki hvort ádreparaspólan gangi á 12 voltum.

Svo er líka til sá möguleiki að breyta öllu rafkerfinu í 24 volt.

Re: sd33t i y60

Posted: 15.jún 2011, 01:39
frá olei
Hér er ein lausn á þessu:

Þú notar 12v alternator á vélina og heldur rafkerfi bílsins óbreyttu.

Þá vantar þig 24V fyrir startara, e.t.v hitakerfi, ádreparaspólu eða hver veit hvað. Til að leysa það mál bætir þú við rafgeymi og tengir mínusinn á honum við plúsinn á þeim sem fyrir er og færð út hefðbundna 24V seríu. Af plúspól viðbótargeymisins fæðir þú 24 volta notendurna. Jörðin er sameiginleg.

Nú - upphaflegi rafgeymirinn er hlaðinn með alternatornum sem sér um að halda honum á réttu róli og fæðir alla notkun bílsins. Til að hlaða hinn rafgeyminn er einfalt og ódýrt að ná í 12v-220Vac inverter - upp á svona 250W eða stærri. Tengja síðan við hann gamaldags hleðslutæki sem hleður aukageyminn. Þannig getur þú hlaðið báða rafgeymana -alveg óháð hvort öðrum- með einum 12v alternator. Ef þú tekur þokkalegan inverter færðu í bónus 220V úttak fyrir fartölvur eða hvað sem er..

Ég veit ekki til að þetta hafi verið gert, en ég sé ekki annað en að þetta gæti verið ódýr og fín lausn. 10A hleðslutæki ætti að duga fínt fyrir aukageymirinn nema bíllinn sé því verri í gang og ekið stutt milli gangsetninga. Eina notkunin á honum er jú 50% af því sem 24V notendurnir nota.

Re: sd33t i y60

Posted: 15.jún 2011, 09:06
frá Þorri
Ykkur er að takast að flækja þetta alveg skelfilega. Notaðu altanatorinn úr y60 og farðu með startaran og láttu breita honum fyrir 12v. Hitanema geturu líklegast notað áfram ef ekki þá eru til 12v nemar sem passa í þessa vél og ádreparinn líka. það er nánast ekkert rafkerfi á þessari vél svo þetta er ekki flókið. Ég tók þátt í að setja vél úr lc 60 sem er 24v í lc 70 sem er 12v og þetta var ekkert mál með rafkerfið. Einhvern tíman heyrði af því að sd33t hafi verið sett í y60 og þá var notaður gírkassinn af 3.3 vélinni þá endir gírstöngin mjög framarlega en það er víst ekkert stórmál ad breita því.
kv. Þorri

Re: sd33t i y60

Posted: 15.jún 2011, 22:08
frá LFS
þakka ykkur kærlega fyrir þettað er buin að panta allt i 12v i velina ;)

Re: sd33t i y60

Posted: 15.jún 2011, 22:19
frá olei
Fannstu 12V startara?

Re: sd33t i y60

Posted: 15.jún 2011, 23:08
frá jeepcj7
Það er orginal í scout

Re: sd33t i y60

Posted: 15.jún 2011, 23:26
frá Þorri
og nissan laurel 2,8 svo er líka hægt að láta breita honum í 12v.