Síða 1 af 1
Glussadrif
Posted: 12.jún 2011, 15:55
frá elfar94
rakst á þetta myndband á youtube og er mjög forvitinn hvernig þetta glussadrif virkar, veit einhver hér eitthvað um þetta?
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=G9C1-clYaVI[/youtube]
Re: Glussadrif
Posted: 12.jún 2011, 21:07
frá Stebbi
[youtube]G9C1-clYaVI[/youtube]
Hér kemur vídeo.
Re: Glussadrif
Posted: 12.jún 2011, 21:21
frá Járni
Land Róverinn atarna er með auka aflúrtak á millikassanum eins og ætti að vera í öllum bílum. Vélin knýr vökvadælu sem snýr sérsmíðuðum búnaði á téðu aflúrtaki og þar með hjólunum. Vökvaflæðinu, og þar með hraðanum, er stýrt með loka inni í bíl.
'Niðurgírunin' er stiglaus, skriðhraðinn ægilega hægur og aflið eftir því.
Bráðsniðugt alveg.
Re: Glussadrif
Posted: 12.jún 2011, 21:27
frá jeepcj7
Ég held einmitt að þetta sé alveg snilld var alveg kominn að því að setja svona í wranglerinn hjá mér á sínum tíma sem var einmitt með rover mótor og kössum.Þetta er mjög sniðugt í bíla sem eru með aftur skaftið til hliðar td.rover,cruiser.rocky.
Hin leiðin er bara að vera með 7 lítra+ í húddinu og nos ;o) valdi reyndar þá leið sjálfur :o)