Sælir,
Sonurinn er að fara úr límingunum út af forhitaraveseni á 2.9ltr Mússó. Virkar stundum og stundum ekki, mældum hitakertin og skiptum um eitt. Fengum annað control box en alveg sama hegðun. Hann var með kenningar um að halli bílsins skiptir máli en það er heldur ekki tryggt. Hafði þið einhverjar hugmyndir?
Getur hitaskynjarinn í blokkinni verið að valda þessu?
Forhitaravesen Dísil Mússó
-
- Innlegg: 1238
- Skráður: 23.mar 2010, 21:21
- Fullt nafn: Stefán Hrannar Dal Björnsson
- Bíltegund: Isuzu Trooper
Re: Forhitaravesen Dísil Mússó
Skipta um öll kertin þó það sé leiðinlegt að komast að þeim.
Þetta var svipað hjá pabba mínum og lagaðist við kertaskipti. Þá var einmitt búið að prufa að skipta um heila.
Þetta var svipað hjá pabba mínum og lagaðist við kertaskipti. Þá var einmitt búið að prufa að skipta um heila.
-
- Innlegg: 305
- Skráður: 01.feb 2010, 19:49
- Fullt nafn: Árni Freyr Rúnarsson
- Bíltegund: 38" Musso
- Hafa samband:
Re: Forhitaravesen Dísil Mússó
Ég lenti í þessu, og það kom í ljós hjá mér að það þurfti að skipta um heila fyrir hitarann og öll kertin.
Það er ekkert gaman að komast að þeim, en ég þurfti að taka soggreinina frá og þá var þetta ekkert mál.
Það er ekkert gaman að komast að þeim, en ég þurfti að taka soggreinina frá og þá var þetta ekkert mál.
Re: Forhitaravesen Dísil Mússó
Sæll Lárus, ég get alveg litið á þetta með ykkur Alex ef þið viljið. Vertu bara í bandi ef þú vilt.
Kv. Freyr
Kv. Freyr
Re: Forhitaravesen Dísil Mússó
arni87 wrote:Ég lenti í þessu, og það kom í ljós hjá mér að það þurfti að skipta um heila fyrir hitarann og öll kertin.
Það er ekkert gaman að komast að þeim, en ég þurfti að taka soggreinina frá og þá var þetta ekkert mál.
Það er algjör óþarfi að rífa soggreinina úr, þetta er svolítið þröngt en hef alltaf skipt um þau án þess að losa greinina. Minnir samt að ég hafi losað einn arm sem tengist inngjöfinni þegar ég geri þetta.
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur