Síða 1 af 1
					
				límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 09.jún 2011, 20:49
				frá LeibbiMagg
				sælir mig langaði bara að láta ykkur vita af því að ég er alltaf að dunda mér að prenta út límmiða og gera lyklakippur þetta er smá vinna en ég get semsagt grafið í með laser þannig þetta er allveg nákvæmt get líka skorið út og allskonar ef menn hafa áhuga geta þeir látið mig vita hvað þeir vilja og ég get reddað því fyrir kanski smá klink 500-1000 kr fyrir límmiða fer eftir stærð og 500 fyrir kippurnar...
það sem menn þurfa að gera er bara að segja mér hvað þeir vilji að standi á kippunni, á hun að vera hringur eða ferköntuð. og hvernig hun á að vera á litin  og svo geta menn sagt mér bara hvernig límmiða þeir vilja og þá er gott að finna með því að google  bara stickers finna miðann og senda mér slóðann er alltaf herna inná þannig senda mér bara póst herna eða í pm
herna er síðan mynd af 2 miðum og einni kippu 
ps get líka gert miða sem límast innaná glugga og einnig utaná bílinn
update
Litir á plexi fyrir lyklakippur 
blár, blárgegnsær dökkur, ljós rauður, dökkrauður gegnsær, ljósbrúnn(litur eins og á baunasúpu), gulur,ljós grænn,dökkgrænn gegnsær og hvítur 
litir á límmiðum eru tildæmis
Rauður, Blár, Gulur, hvítur og grænn
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur
				Posted: 09.jún 2011, 21:26
				frá jeepson
				ég væri game í einn eða 2 svona límmiða eins og eru efst. :)
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur
				Posted: 09.jún 2011, 22:33
				frá LeibbiMagg
				tek það fram að myndirnar herna fyrir ofan eru bara dæmi get gert alskonar
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur
				Posted: 09.jún 2011, 23:33
				frá TWIN 2
				hvað kostar myndin eins og þú ert með efst
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur
				Posted: 09.jún 2011, 23:50
				frá LeibbiMagg
				myndin sem ég á er 24x25cm 1000 ef hun er einhverjum cm minni tildæmis 17x18 cm þá 500 eitthvað svoleiðis
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur
				Posted: 10.jún 2011, 18:21
				frá stebbi1
				Hvernig er með liti og annað slíkt á límmiðum og lyklakippum?
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur
				Posted: 10.jún 2011, 19:13
				frá jeepson
				Og ég er búinn að panta :)
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur
				Posted: 10.jún 2011, 20:09
				frá LeibbiMagg
				límmiðana herna að ofan get ég gert í rauðu hvítu og einhverjum litum skal koma með það eftir helgi nákvæmlega og svo held ég að ég egi að geta prentað límmiða með fleiri en einum lit lyklakyppuna get ég haft gráa rauða/gegnsæa blá og græna og fl
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur
				Posted: 10.jún 2011, 20:11
				frá LeibbiMagg
				þið pantið ég geri fer í póst næsta dag
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur
				Posted: 10.jún 2011, 20:11
				frá jeepson
				heyrðu. Varðandi litina. Þá tók ég það aldrei fram að ég vildi fá mína í hvítu.
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur
				Posted: 11.jún 2011, 01:55
				frá LeibbiMagg
				hehe já ég gerði þá í hvítu þannig það reddaðist hehe
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur
				Posted: 11.jún 2011, 13:20
				frá elfar94
				hvað myndiru taka fyrir að búa til lyklakippu með lödu merkinu?
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur
				Posted: 11.jún 2011, 15:27
				frá jeepson
				LeibbiMagg wrote:hehe já ég gerði þá í hvítu þannig það reddaðist hehe
Frábært. Þakka þér fyrir meistari :)
 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur
				Posted: 11.jún 2011, 19:43
				frá LeibbiMagg
				ekki málið vinur
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 14.jún 2011, 11:24
				frá LeibbiMagg
				upp
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 21.jún 2011, 00:40
				frá LeibbiMagg
				upp
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 21.jún 2011, 01:53
				frá hasi5509
				sæll langar að kaupa miða hjá þér sendu mér símanúmer hjá þér, langar að ræða við þig
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 05.júl 2011, 18:58
				frá jeepson
				Jæja. Ég fékk góða sendingu frá leibbaranum :) Ég er reyndar ekki búinn að klára að setja alla miðana á bílinn. En hér koma tvær svona til að sýna ykkur :)


 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 29.aug 2011, 21:07
				frá ibbi4x4
				
geturu gert svona hvítan miða sem límist utan á afturrúðuna á pallhúsi á hilux. helst sem stærst. borga bara meira :) með fyrir fram þökkum ;)
 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 30.aug 2011, 17:58
				frá Groddi
				Þú getur ekki grafið í riðfrítt erþað?
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 30.aug 2011, 18:01
				frá StefánDal
				Smá spurning. Hvar og hvernig kemstu í aðstöðu til þess að búa svona dót til?
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 02.sep 2011, 00:35
				frá gullli
				Ekki halda niðri í ykkur andanum meðan þið bíðið eftir svari.
Hann ætlaði að búa til límmiða fyrir mig (er kannski búinn að því?) en það seinasta sem ég heyrði frá honum, 26.júlí, var að hann væri búinn að gera annan miðann, hinn væri eftir og hann ætlaði að vera í bandi þegar þetta væri klárt. Skemmst frá því að segja að peningurinn liggur á borðinu og bíður eftir að komast til hans í skiptum fyrir límmiða.
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 02.sep 2011, 10:45
				frá jeepson
				Ég hef ekkert heyrt í lengri tíma og löngu búinn að bórga auka pöntun. Fynst þetta vera orðið eitthvað skrítið.
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 02.sep 2011, 10:55
				frá Svenni30
				Ég er með pöntun hjá honum. síðan í sumar
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 02.sep 2011, 10:58
				frá asgrimur
				Sælir...
Vil endilega fá miða þar sem er verið að pissa yfir Toyotumerkið... stærðin er ca 40 hæð x eitthvað..láttu mig vita hvar ég á að leggja inn og ég bý á Egilsstöðum...
Ásgrímur Ásgrímsson 
Dalbrún 15 
700 Egilsstaðir
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 02.sep 2011, 11:19
				frá HaffiTopp
				Sælir. Ég var að tala við hann um daginn varðandi þessa miða þar sem ég þurfti að breyta mínum úr að vera innan á rúðunni yfir í að vera utaná, sökum of dökkra filma í þeim. Hann kemst víst ekki inn í húsið sem er með þessa aðstöðu sem hann vinnur þessa miða þannig að það verður einhver töf á þessu hjá honum. 
En hann er ekkert að svíkja menn með þetta:)
Kv. Haffi
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 02.sep 2011, 12:14
				frá Svenni30
				Mætti nú alveg láta mann vita samt!!
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 02.sep 2011, 12:48
				frá jeepson
				Ég er nú sammála því að það mætti láta menn vita. Jæja maður veit það þá núna.
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 04.sep 2011, 15:18
				frá gullli
				HaffiTopp wrote:Sælir. Ég var að tala við hann um daginn varðandi þessa miða þar sem ég þurfti að breyta mínum úr að vera innan á rúðunni yfir í að vera utaná, sökum of dökkra filma í þeim. Hann kemst víst ekki inn í húsið sem er með þessa aðstöðu sem hann vinnur þessa miða þannig að það verður einhver töf á þessu hjá honum. 
En hann er ekkert að svíkja menn með þetta:)
Kv. Haffi
Sæll og takk fyrir upplýsingarnar (hefðu mátt koma fyrr, en betra er seint en ekki sagði einhver).
Mér dettur í hug að spyrja þig, því þú virðist hafa betra aðgengi að honum en ég - færð allavega einhver svör.
Hvað er "einhver töf" langur tími, ca.? Nú er ég búinn að bíða í rúman mánuð (einhverjir kannski lengur) og núna koma fyrstu upplýsingar um gang mála. Mig langaði bara að vita hvort ég mætti búast við viku, tveimur, eða kannski öðrum mánuði í viðbót í bið?
G.
 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 04.sep 2011, 22:16
				frá HaffiTopp
				Sæll. Hef ekkert betri aðgang að honum en aðrir hér á spjallinu, hringdi bara í hann þegar ég var búinn að finna númerið hans hérna inni. Búum reyndar báðir á Akranesi og þegar ég kíkti á hann í sumar til að ná í miðana þá komumst við að því að það væru of dökkar filmurnar í öftustu rúðunum hjá mér þannig að það væri meira vit í að búa til nýja miða sem kæmu utaná rúðurnar. Svo leið og beið og maður gleymdi þessu í dagsins amstri og þegar ég hringdi í hann var hann líka búinn að gleyma þessu og auk þess lokaður úti frá þessari aðstöðu sem hann hefur til að prenta þessa miða. 
Kv. Haffi
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 05.sep 2011, 02:05
				frá gullli
				Já þú meinar... takk fyrir svarið :)
Kv. G.
			 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 12.sep 2011, 17:30
				frá Islandsol
				ég var að senda þér póst hér á spjallinu í gær, langar í einn límmiða og svo líka lyklakippu. Viltu hafa samband á 
sola@simnet.is ?
 
			
					
				Re: límmiðar og lyklakippur Update(LITIR)
				Posted: 11.okt 2011, 21:18
				frá gullli
				er eitthvað að frétta héðan?