Síða 1 af 1

econoline eyðsla ???

Posted: 05.jún 2011, 19:09
frá kalliguðna
sælir félagar. hvað er 7,3 lítra econoline að eyða pr. 100 km,?? 4x4
væri þakklátur fyrir upplýst svör.
kv: karl

Re: econoline eyðsla ???

Posted: 05.jún 2011, 20:17
frá dadikr
ég er með stóra bronco með 7,3. hann er stöðugur í svona 19-20 í snattinu og eitthvað lægri en það á langkeyrslu

Re: econoline eyðsla ???

Posted: 05.jún 2011, 20:55
frá birgthor
Ég ferðast töluvert á 7,3 túrbólausum á 38" og hann virðist vera stabíll í 20 sama hvað er.

Re: econoline eyðsla ???

Posted: 06.jún 2011, 19:29
frá kalliguðna
þúsund þakkir fyrir þetta félagar.
kv :Kalli

Re: econoline eyðsla ???

Posted: 07.jún 2011, 13:14
frá juddi
Þetta fer mikið eftir gírun í bílnum

Re: econoline eyðsla ???

Posted: 07.jún 2011, 18:49
frá kalliguðna
eru menn með einhverjar aðrar eyðslutölur ??? endilega láta það flakka.
kv:Kalli

Re: econoline eyðsla ???

Posted: 07.jún 2011, 21:01
frá Hagalín
kalliguðna wrote:eru menn með einhverjar aðrar eyðslutölur ??? endilega láta það flakka.
kv:Kalli



Hef ferðast svolítið á Econoline 2001módel með 7.3powerstr á 35". Hann er venjulega í um 15l/100km úti á vegi með dót og fólk.
Eitt sem ég vil benda á að það þarf að sjúga upp afgangsolíu með sugu ofan af. Það er gert í gegn um rafmagnstengi sem skúfað er af.
Kanski getur einhver fróðari um það líst því betur hvar stúturinn er.

Kem með mynd af þessu fljótlega.
Eftir að við gerðum það varð bíllinn allt annar í gang og vann mun betur.

Re: econoline eyðsla ???

Posted: 12.jún 2011, 10:16
frá kalliguðna
sælir aftur, 15 lítrar er eitthvað sem ég gæti sætt mig við, Hagalín er þinn bíll 4x4 ?
og hvaða afgangsolíu ertu að tala um , og hefur það eitthvað að gera með eiðsluna???
kv Kalli

Re: econoline eyðsla ???

Posted: 12.jún 2011, 14:00
frá Hagalín
kalliguðna wrote:sælir aftur, 15 lítrar er eitthvað sem ég gæti sætt mig við, Hagalín er þinn bíll 4x4 ?
og hvaða afgangsolíu ertu að tala um , og hefur það eitthvað að gera með eiðsluna???
kv Kalli



Já, hann er 4x4 á 35".

Re: econoline eyðsla ???

Posted: 20.jún 2011, 14:37
frá Hagalín
Fór í dag á Econoline 2001 módel 7.3powerstroke 35" 4x4 frá Akranesi með 6 krakka á Gufuskála og var bíllinn með 13.4l/100km þessa 360km sem eknir voru.